02/18/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/18/2026 04:56
Mennta- og barnamálaráðuneytið kynnir áform um mótun ungmennastefnu sem á að lýsa því hvernig stjórnvöld styðja við ungmenni og tryggja þeim raunveruleg tækifæri, réttindi og rödd í samfélaginu.
Áformað er að móta ungmennastefnu Íslands fyrir árin 2026-2033 samkvæmt stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins. Um er að ræða fyrstu heildstæðu ungmennastefnu á Íslandi. Markmiðið er að ná utan um þau málefni stjórnvalda sem snúa að ungmennum og að stefna stjórnvalda í þeim málaflokkum sé skýr.
Áformað er að stefnan taki til ungmenna á aldrinum 13-30 ára og verði heildstæð sýn stjórnvalda á málefni er snúa að lífi og þroska ungmenna á aldursbilinu. Á þessum árum eru börn og ungmenni að auka sjálfstæði sitt og stíga sín fyrstu skref inn í fullorðinsárin og mikilvægt er að grípa til aðgerða sem stuðla að því að þau verði virkir þátttakendur í íslensku samfélagi.
Áhersla þessarar vinnu er að samtalið sé á forsendum ungmenna og fari þess vegna að miklu leyti fram í umhverfi sem þau þekkja og treysta. Það er því von ráðuneytisins að ungmenni um allt land taki þátt í samtalinu um hvað felist í ungmennastefnunni. Mennta- og barnamálaráðuneytið hvetur skóla, félagsmiðstöðvar, ungmennahús, félagasamtök og aðra aðila sem vinna með ungmennum til að nýta áformaskjölin í samtal við ungmenni og gefa þeim tækifæri til þess að ræða málefnin á þeirra vegum og koma sínum skoðunum á framfæri.
Mennta- og barnamálaráðuneytið fagnar samráði við alla hópa um málefnið en sérstaklega hvetjum við það starfsfólk sem vinnur með ungmennum í starfi eða sjálfboðavinnu til að senda inn þær niðurstöður sem koma út úr samtali við ungmenni í þeirra starfi. Starfshópur á vegum stjórnvalda mun taka saman allar umsagnir og móta í kjölfarið drög að fyrstu ungmennastefnu Íslands.