Government Offices of Iceland

02/09/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/09/2026 08:15

Ráðherra ræddi sjálfviljuga heimför útlendinga á fundi með forstjóra Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, fundaði í dag með Amy Pope, aðalframkvæmdastjóra Alþjóðlegu fólksflutningastofnunarinnar (IOM), þar sem rætt var um mikilvægi samstarfs Íslands og stofnunarinnar á sviði fólksflutninga og sjálfviljugar heimfarar.

Á fundinum var jafnframt rætt um hvernig Ísland geti, sem smáríki, áfram styrkt getu sína á þessu sviði. Ráðherra ítrekaði að megináhersla íslenskra stjórnvalda væri að efla áfram sjálfviljuga heimför og sjálfbæra enduraðlögun við komu til heimaríkis.

"Sjálfviljug heimför er skilvirkasta, sjálfbærasta og mannúðlegasta leiðin. Markmið okkar er að styrkja það kerfi enn frekar og hefja ráðgjöf fyrr í umsóknarferlinu," segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Alþjóðlega fólksflutningastofnunin er leiðandi milliríkjastofnun á sviði fólksflutninga og hluti af stofnanakerfi Sameinuðu þjóðanna. Stofnunin vinnur að því að stuðla að mannúðlegum og skipulegum fólksflutningum, vernda réttindi og velferð útlendinga og styðja stjórnvöld við mótun og framkvæmd stefnu í tengslum við fólksflutninga um allan heim.

Árangursríkt samstarf í áratug

Í ár eru tíu ár liðin frá því samstarf Íslands og stofnunarinnar um sjálfviljuga heimför og enduraðlögun hófst og verkefnið hefur stutt mörg hundruð einstaklinga við að snúa aftur til heimaríkja sinna frá Íslandi. Á fundinum lýsti ráðherra yfir þakklæti fyrir langvarandi og traust samstarf við IOM og undirstrikaði mikilvægi þess fyrir Ísland. Sérstök áhersla var lögð á stuðning IOM við sjálfviljuga heimför, öflun ferðaskilríkja og enduraðlögun einstaklinga í heimaríki.

Einnig var rætt um möguleika á að þróa frekar úrræði til að hvetja til sjálfviljugrar heimfarar einstaklinga sem hlotið hafa alþjóðlega vernd hér á landi, þegar aðstæður í heimaríkjum batna, og hvernig tryggja megi sjálfbæra enduraðlögun þeirra við komu til heimaríkis.

Ráðherra og starfsfólk ráðuneytisins ásamt Amy Pope og sendinefnd IOM

Amy Pope er í opinberri heimsókn á Íslandi þessa vikuna ásamt sendinefnd frá stofnuninni. Á meðan dvöl hennar stendur mun hún meðal annars funda með utanríkisráðherra og utanríkismálanefnd Alþingis ásamt því að taka þátt í fundi á vegum Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Government Offices of Iceland published this content on February 09, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on February 09, 2026 at 14:15 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]