Prime Minister's Office of Iceland

07/07/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/07/2026 03:47

Forsætisráðherra og utanríkisráðherra sækja leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Ankara

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins hefst í Ankara í Tyrklandi í dag, þar sem gert er ráð fyrir að aukin framlög bandalagsríkja til varnarmála, jafnari skipting byrða og áframhaldandi stuðningur við Úkraínu verði í forgrunni. Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sækja fundinn fyrir hönd Íslands.

Formleg dagskrá leiðtogafundarins hefst síðdegis með fundi utanríkisráðherra bandalagsins og samstarfsríkjum úr Persaflóa, þ.e. Katar, Kúveit, Barein og Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Í framhaldinu funda utanríkisráðherrar í NATO-Úkraínuráðinu með utanríkisráðherra Úkraínu og utanríkismálastjóra Evrópusambandsins. Á sama tíma funda varnarmálaráðherrar með samstarfsríkjum úr Indó-Kyrrahafinu, þ.e. Japan, Suður-Kóreu, Nýja Sjálandi og Ástralíu.

Dagskrá leiðtoga Atlantshafsbandalagsins hefst með hátíðarkvöldverði í boði forsetahjóna Tyrklands þar sem Úkraínuforseta, forseta Suður-Kóreu og forystufólki Evrópusambandsins er jafnframt boðið. Þá er sérstakur varnariðnaðardagur (e. NATO Summit Defence Industry Forum, NSDIF) skipulagður í Ankara í dag þar sem fyrirtæki í geiranum kynna sig, þar sem tilkynnt verður um frekara samstarf og uppbyggingu varnargetu og samningar undirritaðir.

Á morgun fer svo fram formlegur fundur leiðtoga bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins þar sem aukin framlög til varnarmála, skipuleg byrðaskipting frá Bandaríkjunum til ríkja Evrópu og Kanada, efling varnariðnaðar og áframhaldandi öflugur stuðningur við Úkraínu verða efst á blaði. Ógnin frá Rússlandi og staða mála í Miðausturlöndum og á Hormússundi munu einnig setja mark sitt á umræður og samtöl á leiðtogafundinum.

Hægt er að fylgjast með dagskrá leiðtogafundarins á vefsíðu Atlantshafsbandalagsins.

Prime Minister's Office of Iceland published this content on July 07, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on July 07, 2026 at 09:47 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]