Government Offices of Iceland

02/11/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/11/2026 09:52

Störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025: Fjölbreytt verkefni og aukinn kraftur með samstarfi

Logi Einarsson samstarfsráðherra Norðurlanda flutti í síðustu viku fyrir Alþingi árlega skýrslu sína um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025. Skýrslan dregur fram þau mál sem voru í brennidepli í norræna ríkisstjórnarsamstarfinu á árinu auk áherslumála Íslands. Einnig er greint frá helstu verkefnum hjá 12 ráðherranefndum á mismunandi fagsviðum og fjallað um norrænt samstarf forsætisráðherra Norðurlanda. Sem fyrr er skýrslan unnin í góðri samvinnu allra þeirra fagráðuneyta sem taka þátt í norræna ríkisstjórnarsamstarfinu á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar.

Í framsöguræðu sinni kom ráðherra inn á stöðu alþjóðamála en undanfarið ár hefur einkennst af sviptingum í alþjóðakerfinu. "Við lifum á tímum þar sem grafið er undan þeim gildum sem hafa sameinað okkur og styrkt samfélög okkar. Lýðræði, frelsi og mannréttindi eru ekki sjálfgefin, heldur gildi sem þarf stöðugt að standa vörð um. Í þessum aðstæðum er mikilvægt að við stöndum ekki ein. Við þurfum að vinna náið með þeim löndum sem deila sömu sýn og við - löndum sem trúa á lýðræði, virða frelsi einstaklinga og standa vörð um mannréttindi.

Ávinningur af norrænni samvinnu er mikill og nýtur Ísland góðs af því á margvíslegan hátt. Það er aukinn kraftur í að takast á við úrlausnarefni í samstarfi við vinveitt lönd og stærri hagkerfi. Við megum ekki gleyma að Norðurlöndin eru tólfta stærsta hagkerfi heims með um 27 milljónir íbúa," segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda.

Í skýrslunni er fjölbreyttum verkefnum á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar gerð skil. Má sem dæmi nefna verkefni um stafræna vellíðan barna og ungmenna, tengslanet fyrir tungumálalíkön innan nýstofnaðs gervigreindarseturs norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna, græn orkuskipti til lengri tíma auk baráttunnar gegn skipulagðri glæpastarfsemi.

"Tökum ekki norrænu samstarfi sem gefnu. Við þurfum að rækta og styrkja samstarfið og taka virkan þátt. Um leið og við lærum hvert af öðru, njótum við þess að vera hluti af stærri heild. Með samstöðu okkar, ábyrgð og virkni erum við betur í stakk búin til að standa vörð um okkar sameiginlegu gildi. Það er von mín að skýrslan verði gott innlegg inn í þá umræðu," segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda.

Skýrsla samstarfsráðherra Norðurlanda um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025

Þingskjal - skýrsla samstarfsráðherra Norðurlanda um störf Norrænu ráðherranefndarinnar 2025

Government Offices of Iceland published this content on February 11, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on February 11, 2026 at 15:53 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]