Government Offices of Iceland

05/13/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/13/2026 13:22

Samstaða og eining um mikilvægi Atlantshafsbandalagins

Leiðtogar svokallaðs B9-ríkjahóps (Búkarest níu) funduðu í dag í Búkarest ásamt fulltrúum Norðurlandanna og Bandaríkjanna og með þátttöku Volodómír Selenskí Úkraínuforseta og Mark Rutte, framkvæmdastjóra Atlantshafsbandalagsins. Benedikt Árnason, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, sótti fundinn í forföllum forsætisráðherra. Fór fundurinn fram í aðdraganda leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Ankara í júlí næstkomandi.

Ríkur samhljómur var í umræðum leiðtoganna um mikilvægi þess að halda áfram á þeirri braut sem var vörðuð á leiðtogafundinum í Haag í fyrra um stóraukin framlög til varnarmála til að mæta breyttu öryggisástandi og áframhaldandi stuðningi við varnarbaráttu Úkraínu.

Íslensk stjórnvöld leggja áherslu á að öfluga samstöðu og einingu innan Atlantshafsbandalagsins og var það sjónarmið áréttað á fundinum. Ísland mun halda áfram að leggja sitt af mörkum til að styrkja bandalagið og Atlantshafstengslin í samræmi við varnarskuldbindingar sínar á grundvelli nýsamþykktrar stefnu í varnar- og öryggismálum. Íslensk stjórnvöld hafa einsett sér að auka framlag og þátttöku í starfi og verkefnum Atlantshafsbandalagsins, þ. á m. að styrkja enn frekar gistiríkjastuðning við bandalagsríki. Þá tekur Ísland þátt í árvekniaðgerðinni Arctic Sentry sem ýtt var úr vör fyrr á árinu og er mikilvægt skref í að styrkja enn frekar öryggis- og varnargetu bandalagsins á norðurslóðum. Auk þess mun Ísland halda áfram einörðum stuðningi við varnarbaráttu Úkraínu.

Karol Nawrocki, forseti Póllands, Benedikt Árnason, ráðuneytisstjóri forsætisráðuneytisins, og Nicusor Dan, forseti Rúmeníu.

Í sameiginlegri yfirlýsingu ríkjanna er áhersla lögð á auknar varnir á austurvæng Atlantshafsbandalagsins og að varnargeta þess myndi órofa heild allt frá Svartahafi, til Eystrasaltsins, Norðurlandanna og norðurslóða. Lýsa leiðtogarnir því yfir að Rússland sé viðvarandi ógn við öryggi bandalagsríkja og forystuhlutverk bandalagsins um sameiginlegar varnir áréttað.

Búkarest níu er samráðshópur níu ríkja á austurvæng Atlantshafsbandalagsins. Hópurinn var stofnaður árið 2015 að frumkvæði forseta Rúmeníu og Póllands í kjölfar innlimunar Krímskaga og miðar að því að auka varnarsamstarf ríkjanna. Öll ríki hópsins eiga það sammerkt að hafa verið hluti af Sovétríkjunum eða aðildarríki Varsjárbandalagsins.

Sameiginleg yfirlýsing fundarins í Búkarest (á ensku)

Government Offices of Iceland published this content on May 13, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 13, 2026 at 19:22 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]