Results

Government Offices of Iceland

02/18/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/18/2026 11:45

Forsætisráðherrar Íslands og Noregs funduðu í Osló

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra átti í dag vinnufund með Jonas Gahr Støre forsætisráðherra Noregs í Osló. Á fundinum ræddu ráðherrarnir m.a. samstarf ríkjanna tveggja, öryggis- og varnarmál, málefni Norðurslóða og EES- og Evrópumál.

"Norðmenn eru ein af okkar nánustu vinaþjóðum og hafa staðið þétt við hlið okkar á alþjóðlegum vettvangi. Það er afar dýrmætt að eiga slíkan stuðning vísan, ekki síst á þeim viðsjárverðu tímum sem nú eru uppi í alþjóðamálum," segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra.

"Tvíhliða samskipti Íslands og Noregs hafa alla tíð verið góð en upp á síðkastið hafa þau styrkst enn frekar, þökk sé mun jákvæðari tón en áður þegar kemur að fiskveiðimálum. Við eigum einstakt samband við Norðmenn, einkum í gegnum EES-samninginn og öflugt Norðurlandasamstarf. Við munum áfram leggja okkur fram við að efla þessi samskipti, sem byggja nú þegar á gríðarlega traustum grunni," segir Kristrún.

Afgerandi afstaða í málefnum Norðurslóða

EES-samningurinn og yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðsla um hvort hefja skuli aðildarviðræður við Evrópusambandið komu einnig til tals á fundinum. Forsætisráðherra Íslands kom því skýrt á framfæri að nauðsynlegt væri að standa vörð um EES-samninginn, óháð því hvernig þjóðaratkvæðagreiðslan fari. Bæði Ísland og Noregur eigi mikið undir því að EES-samningurinn standi sterkt.

"Við ræddum líka málefni Norðurslóða sem hafa verið í eldlínunni síðustu mánuði. Bæði ég og forsætisráðherra Noregs höfum verið afgerandi í afstöðu okkar hvað þau mál varðar. Við stöndum keik með Grænlandi. Nú þegar augu heimsbyggðarinnar eru á Norðurslóðum er mikilvægt að öll umræða byggi á virðingu fyrir fólkinu sem hér býr. Það er ólíðandi að ýjað sé að því að landamæri ríkja verði virt að vettugi," segir Kristrún.

"Bandalagsríki horfa sömuleiðis til okkar í auknum mæli í varnarmálum á svæðinu. Ísland hefur axlað þá ábyrgð í góðu samstarfi við t.d. Bandaríkin og Noreg, sem m.a. hafa sinnt loftýmisgæslu og viðveru á varnarsvæðinu í Keflavík. Það hefur reynst dýrmætt."

Government Offices of Iceland published this content on February 18, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on February 18, 2026 at 17:45 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]