Government Offices of Iceland

07/03/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/03/2026 09:26

Fullgilding auðveldar samvinnu í rannsóknum á skipulagðri brotastarfsemi

Ísland hefur fullgilt aðra viðbótarbókun við Evrópusamninginn um gagnkvæma aðstoð í sakamálum. Fullgildingin auðveldar íslenskum stjórnvöldum og yfirvöldum annarra ríkja að vinna saman að rannsóknum og meðferð sakamála milli landa.

Með fullgildingu á samningnum er gildissvið hans útvíkkað þannig að hægt er að óska eftir aðstoð í fleiri tilvikum. Þetta á til að mynda við um skýrslutökur af vitnum og sérfræðingum í gegnum fjarfund eða síma auk þess sem finna má ákvæði sem auðveldar samskipti og framkvæmd réttabeiðna milli ríkja.

Dómsmálaráðherra lagði á síðasta ári fram frumvarp til breytinga á lögum um framsal sakamanna og aðra aðstoð í sakamálum. Eitt af markmiðum frumvarpsins var að gera Íslandi kleift að fullgilda viðbótarbókunina.

Þegar lagabreytingarnar voru samþykktar síðasta sumar voru lögfest þau lagaákvæði sem nauðsynleg voru til að íslensk stjórnvöld gætu staðið undir skuldbindingum viðbótarbókunarinnar. Breytingin gerir íslenskum yfirvöldum kleift að semja um þátttöku í sameiginlegum rannsóknarhópum með öðrum ríkjum Evrópuráðsins, sem er mikilvæg breyting í að styrkja löggæsluna í rannsóknum á skipulagðri glæpastarfsemi.

Government Offices of Iceland published this content on July 03, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on July 03, 2026 at 15:26 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]