08/11/2026 | Press release | Distributed by Public on 08/11/2026 06:20
Almyrkvi á sólu verður síðdegis á morgun. Hann hefst á Vestfjörðum og fer yfir Vestfirði, Vesturland og Reykjanesskaga. Deildarmyrkvi verður um allt land. Nánari upplýsingar um tímasetningar og hvar almyrkvinn verður sýnilegur er að finna á upplýsingagátt stjórnvalda á island.is.
Samkvæmt veðurspám eru mestar líkur á hagstæðum aðstæðum til að fylgjast með almyrkvanum á Vestfjörðum. Gangi spár eftir má búast við aukinni aðsókn að svæðinu og álagi á innviði, einkum á sunnanverðum Vestfjörðum.
Biðlað er til þeirra sem ætla að leggja land undir fót að leggja tímanlega af stað, vera vel undirbúin og gera ráð fyrir lengri ferðatíma. Á stöðum eins og Látrabjargi og öðrum afskekktum stöðum er takmarkað rými og minni þjónusta en í þéttbýli. Þetta á til að mynda við um hleðslustöðvar fyrir rafmagnsbíla. Þá geta vegir verið þrengri, bílastæði takmörkuð og veður breyst hratt. Tímabundnar aðgangstakmarkanir og umferðastýring verða sums staðar á Vestfjörðum og má kynna sér það nánar á island.is/almyrkvi.
Jafnframt er rétt að hafa í huga að almyrkvinn verður einstök upplifun fyrir alla sem verða á almyrkvaslóð, óháð veðri. Á höfuðborgarsvæðinu og víðar hafa sveitarfélög skilgreint sérstök áhorfs- og söfnunarsvæði þar sem almenningur getur notið atburðarins við öruggar aðstæður.
Fólk er beðið um að lesa vel leiðbeiningar um hvernig það verndar augnheilsu og huga þarf sérstaklega að börnum. Brýnt er að notuð séu viðurkennd sólmyrkvagleraugu en leiðbeiningar frá embætti landlæknis má nálgast hér.
Í minnisblaði sem lagt var fyrir ríkisstjórnina í morgun kom fram að í tengslum við almyrkvann hefur umfangsmikið samráð og samhæfing átt sér stað við sveitarfélög, viðbragðsaðila, ferðaþjónustu og aðra lykilhagaðila. Fjölmargar stofnanir og viðbragðsaðilar gegna hvert um sig ríku hlutverki. Lögregla og björgunarsveitir hafa skipulagt aukinn viðbúnað sem og heilbrigðisstofnanir, Vegagerðin o.fl. Fjarskiptaþjónusta við Látrabjarg hefur verið efld og undirbúningi Neyðarlínunnar og fjarskiptafyrirtækja er lokið.
Landhelgisgæslan verður með aðgerðarbát ásamt áhöfn á Rifi eða Arnarstapa og verður annar slíkur bátur tiltækur í Helguvík á Suðurnesjum. Þyrla Gæslunnar verður í viðbragðsstöðu á Snæfellsnesi og varðskipið Freyja verður staðsett undan sunnanverðum Vestfjörðum.
Stjórnvöld hvetja alla til að fylgjast með nýjustu upplýsingum um veður, umferð og aðgengi á upplýsingagátt stjórnvalda, hjá Veðurstofu Íslands, Vegagerðinni og lögreglu.