Government Offices of Iceland

06/30/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/30/2026 09:50

Stefna í fjarheilbrigðisþjónustu – skýrsla starfshóps

Starfshópur sem heilbrigðisráðherra fól að móta stefnu í fjarheilbrigðisþjónustu hefur skilað ráðherra skýrslu með tillögum sínum. Hópurinn setur fram heildarmarkmið og framtíðarsýn sem byggir á því að notendur heilbrigðisþjónustu á Íslandi hafi öruggt, skilvirkt og notendavænt aðgengi að fjarheilbrigðisþjónustu sem er samþætt hefðbundinni heilbrigðisþjónustu, styður við heilsu og sjálfstæði einstaklinga ásamt því að nýta tækni á ábyrgan hátt.

"Það er mikil gróska í þróun og innleiðingu nýrra lausna á þessu sviði og mikil tækifæri til framtíðar. Við uppbyggingu fjarheilbrigðisþjónustu þarf að vanda mjög til verka þannig að gæði og öryggi séu tryggð í öllum þáttum. Til þess þarf skýra stefnu sem vísar veginn og það er ekki síst mikilvægt fyrir starfsemi Stafrænnar heilsu sem tók til starfa í byrjun árs" segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.

Gengið er út frá því að fjarheilbrigðisþjónusta geti verið hluti af annarri heilbrigðisþjónustu og lúti þá öllum sömu reglum, kröfum og skilyrðum um öryggi og gæði. Sama máli gegnir um kaup hins opinbera á fjarheilbrigðisþjónustu og þjónustulausnum að samningar eru forsenda fyrir greiðsluþátttöku.

Í skýrslu starfshópsins er fjallað um helstu grundvallarforsendur fyrir uppbyggingu öruggrar, skilvirkrar og aðgengilegrar fjarheilbrigðisþjónustu. Þetta eru; gæði og öryggi, gagnaskráning og tæknileg samræming og fjármögnun. Hér er stuttlega fjallað um þessi atriði en þeim eru gerð ítarleg skil í skýrslu hópsins.

Gæði og öryggi

Fjarheilbrigðisþjónusta ætti að verða samþættur hluti heilbrigðiskerfisins alls og uppfylla sömu klínísku gæðastaðla og staðbundin þjónusta. Lagt er til að skilgreindir verði gæðavísar fjarheilbrigðisþjónustu hjá veitendum fjarheilbrigðisþjónustu auk miðlægra gæðavísa sem gildi fyrir alla eða tiltekna tegund fjarheilbrigðisþjónustu. Jafnræði og aðgengi eru sett í forgrunn stefnunnar þannig að fjarheilbrigðisþjónusta verði valkostur þar sem hún bætir virði fyrir bæði notanda og veitanda þjónustunnar en einnig fyrir samfélagið allt.

Gagnaskráning og tæknileg samræming

Gagnaskráning í fjarheilbrigðisþjónustu á að vera í samræmi við gildandi lög og reglur og byggja á meginreglum um trúnað, öryggi og vernd persónuupplýsinga. Markmið skráningar er að styðja við örugga og samfellda þjónustu, faglega ákvarðanatöku, rekjanleika og vernd réttinda

Fjármögnun

Lögð er áhersla á að fjármögnun sé ein af grunnforsendum þess að fjarheilbrigðisþjónusta verði raunhæfur og samræmdur hluti heilbrigðiskerfisins. Lagt er til að sérstaklega sé skilgreint fjármagn til stofnunar, innleiðingar, þróunar og reksturs fjarheilbrigðisþjónustu. Fjármögnun þarf einnig að ná til innviða svo sem öruggra tengileiða og netsambands um allt land þannig að þjónustan verði aðgengileg óháð búsetu. Markviss fjármögnun á jafnframt að miða að því að draga úr beinum og óbeinum kostnaði notenda heilbrigðisþjónustu svo sem ferðakostnaði, tíma- og vinnutapi.

Government Offices of Iceland published this content on June 30, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 30, 2026 at 15:50 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]