04/15/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/15/2026 10:54
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, hefur skipað Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu, í embætti ríkislögreglustjóra. Hún tekur við embætti mánudaginn 20. apríl.
Halla Bergþóra er 56 ára og lauk embættisprófi frá Háskóla Íslands árið 1995. Hún hefur verið lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu síðan 2020 sem er stærsta lögregluembætti landsins.
Halla Bergþóra hefur nítján ára reynslu af stjórnun lögregluembætta en síðustu sautján ár hefur hún verið settur eða skipaður lögreglustjóri í þremur embættum, meðal annars hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra auk þess sem hún var sýslumaður á Akranesi á árunum 2009 til 2014.
Halla Bergþóra hefur sem lögreglustjóri leitt umfangsmikil verkefni, verið farsæll stjórnandi og stýrt stórum hópi starfsfólks hjá ólíkum lögregluembættum. Halla Bergþóra var formaður lögreglustjórafélagsins á þeim tíma sem lögreglustjóraembættin voru stofnuð, kom að þeirri vinnu í samstarfi við ráðuneytið og átti þátt í að móta nýtt embætti frá grunni.
Embætti ríkislögreglustjóra var auglýst laust til umsóknar þann 3. desember og sóttu fjórir um.