Government Offices of Iceland

05/29/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/29/2026 09:25

Stuðningur við Úkraínu og skuggaflotinn efst á baugi á utanríkisráðherrafundi Eystrasaltsráðsins

Áframhaldandi stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu, fjölþáttaógnir og vaxandi áskoranir tengdar hinum svokallaða skuggaflota Rússlands voru efst á baugi á fundi utanríkisráðherra Eystrasaltsráðsins sem lauk í Sopot í Póllandi á föstudag. Martin Eyjólfsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, tók þátt í fundinum í fjarveru Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra.

Í sameiginlegri yfirlýsingu lýstu ríkin yfir áframhaldandi stuðningi við varnarbaráttu Úkraínu gegn ólöglegu innrásarstríði Rússlands. Binda þurfi enda á innrásarstríðið og tryggja réttlátan og varanlegan frið í Úkraínu.

Eystrasaltsráðið var stofnað árið 1992 og eiga þar sæti Norðurlöndin, Eystrasaltsríkin, Pólland, Þýskaland og Evrópusambandið. Ráðið hefur aðsetur í Stokkhólmi og á vettvangi þess fer fram margþætt samstarf aðildarríkjanna um málefni á borð við barnavernd, málefni ungmenna, aðgerðir gegn mansali og almannavarnir. Rússlandi var meinuð þátttaka í Eystrasaltsráðinu í byrjun mars 2022. Í kjölfarið, eða 17. maí 2022, tilkynnti Rússland svo formlega um úrsögn sína úr ráðinu.

Ísland tekur við formennsku í Eystrasaltsráðinu í byrjun júlí.

Government Offices of Iceland published this content on May 29, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 29, 2026 at 15:25 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]