Reykjavik University

11/06/2026 | Press release | Distributed by Public on 11/06/2026 07:56

Ný gervigreindarstefna HR samþykkt: Verðmætasköpun, mennska og ábyrg notkun

6. nóvember 2026

Ný gervigreindarstefna Háskólans í Reykjavík var samþykkt á fundi framkvæmdaráðs HR í lok september. Stefnan byggir á Stefnu HR til ársins 2030 og útfærir áherslu skólans um að nýta framfarir í tækni og gervigreind á ábyrgan hátt.

Tilgangur gervigreindarstefnu HR er að skólinn nálgist framfarir í gervigreind af sömu heilindum og annað í starfsemi skólans, nýti tækifærin af metnaði, hafi mennskuna í fyrirrúmi og byggi notkun á ábyrgð.

Dr. Bryndís Björk Ásgeirsdóttir, aðstoðarrektor náms, nemenda og sjálfbærni í HR var ein af þeim sem vann að því að koma gervigreindarstefnunni á fót. Bryndís Björk segir HR mæta framþróun gervigreindar með framsýni og gagnrýnni hugsun þar sem tæknin styðji fólk en leysi ekki mannlega dómgreind af hólmi.

"Ástæðan fyrir því að við gerðum stefnuna er að við sjáum að gervigreind er að breyta mjög hratt nálgun og vinnulagi í kennslu og námi, rannsóknum og nýsköpun og daglegum störfum fólks og þar af leiðandi þörfum atvinnulífsins.

Með stefnumótuninni fengum við starfsfólk og nemendur að borðinu til að deila því hvaða tækifæri og áskoranir þau sjá fyrir starfsemi skólans í þessu sambandi og hvaða framtíðarsýn við höfum varðandi notkun gervigreindar.

Stefnan er því leiðarvísir okkar allra inn í framtíðina og í ljósi þess hve framþróun gervigreindar er hröð þá gerum við auðvitað ráð fyrir því að stefnan verði endurskoðuð miðað við reynslu og framþróun tækninnar mjög reglulega.

Næstu skref eru svo að halda áfram að framkvæma og móta ýmis verkefni og aðgerðir sem styðja við stefnuna og að slíkar aðgerðir verði bæði á skólavísu en líka í öllum deildum og starfseiningum skólans," segir Bryndís Björk.

Nær til allra nemenda og alls starfsfólks

Gervigreindarstefnan gildir í allri starfsemi HR: í námi og kennslu, rannsóknum og nýsköpun og við stjórnun og rekstur. Hún nær til nemenda og alls starfsfólks í öllum deildum og starfseiningum.

Grundvöllur stefnunnar er þríþættur: verðmætasköpun, mennska og ábyrg notkun.

Kynning á gervigreindarstefnu HR.

Reykjavik University published this content on November 06, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on November 06, 2026 at 13:56 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]