Ministry for the Environment, Energy and Climate of Iceland

09/20/2024 | Press release | Distributed by Public on 09/20/2024 08:47

Hálfum milljarði veitt í styrki vegna hreinorku vörubifreiða

20. september 2024 Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið

Hálfum milljarði veitt í styrki vegna hreinorku vörubifreiða

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hefur ákveðið að veita 510 milljónum króna í styrki til kaupa á hreinorku vörubifreiðum á þessu ári. Þetta er í annað sinn sem slíkir styrkir eru veittir, en áætlað er að um rúmlega 600 þúsund lítrar af olíu sparist árlega með notkun hreinorku vörubifreiðanna sem hljóta styrk að þessu sinni. Hvert tæki sem kemst á hreina orku vegur þungt í orkuskiptum, þar sem hvert tæki notar margfalt meiri olíu á við venjulega fólksbifreið.

Allar 55 umsóknirnar sem bárust voru samþykktar með upphæðum samkvæmt samrýmdum viðmiðum. Sótt var um 621 milljónir kr. og komu 510 milljónir kr. til úthlutunar. Umsóknirnar sem bárust að þessu sinni eru um helmingi fleiri en í fyrra og vegna fleiri gerða hreinorku vöruflutningabíla. Ljóst er að framboð slíkra bíla er að aukast verulega.

Flestar voru umsóknirnar að þessu sinni vegna kaupa á stærri sendibílum eða pallbílum með stórum rafhlöðum, en einnig var talsvert um umsóknir vegna stærri vörubifreiða með enn stærri og öflugri rafhlöðum.

Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: "Það er kraftur í orkuskiptum í samgöngum og þar eru þungaflutningarnir ekki undanskildir. Eftir styrkveitingu síðasta árs eru þegar allnokkrir þungaflutningsbílar sem alfarið eru knúnir rafmagni komnir á göturnar. Áætlað er að með styrkveitingunum sem kynntar eru í dag sparist rúmlega 600 þúsund lítrar af olíu og það er magn sem munar um. Ljóst er að framboð hreinorku vörubifreiða er að aukast verulega og byrjað er að huga að innviðum fyrir þessa nýju kynslóð tækja sem flytja munu vörur, fyrst um þéttbýli og á allra næstu árum um land allt á innlendri, vistvænni orku. Við þurfum að tryggja að vinna við þriðju orkuskiptin haldi áfram og sýna þar sömu hugdirfsku og forfeður okkar gerðu er þeir fóru í fyrstu og önnur orkuskiptin.

Styrkveitingar Orkusjóðs

Efnisorð

Til baka