Prime Minister's Office of Iceland

11/08/2024 | Press release | Distributed by Public on 11/08/2024 08:50

Samantekt ráðuneytisstjórahóps um jöklaferðir, í kjölfar banaslyss á Breiðamerkurjökli

Á fundi ríkisstjórnar 27. ágúst sl. var ákveðið að koma á fót starfshópi ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytis, menningar- og viðskiptaráðuneytis, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis og dómsmálaráðuneytis til að afla upplýsinga um banaslys sem varð í skipulagðri ferð í jöklaferð á Breiðamerkurjökli sunnudaginn 25. ágúst. sl. og skoða öryggi í íshellaferðum almennt.

Starfshópurinn kallaði eftir skýrslum varðandi atvikið frá Ferðamálastofu og Vatnajökulsþjóðgarði og átti fundi með Veðurstofunni, Vatnajökulsþjóðgarði, Ferðamálastofu, Samtökum ferðaþjónustunnar, Hornafjarðarbæ, Mýrdalshreppi, Bláskógabyggð, Borgarbyggð, Ferðamálasamtökum Austur- Skaftafellssýslu og Félagi fjallaleiðsögumanna. Samantekt ráðuneytisstjórahópsins var kynnt á fundiríkisstjórnar 8. nóvember. Sjá minnisblað hér.

Í tillögum starfshópsins, sem í framhaldi þarfnast nánari útfærslu í samráði við haghafa, koma fram eftirfarandi ábendingar til úrbóta:

1. Öryggisáætlun ferðaþjónustuaðila jöklaferða verði hluti leyfisveitingaferils

2. Auknar kröfur verði gerðar í samningum Vatnajökulsþjóðgarðs við ferðaþjónustuaðila um menntun og reynslu leiðsögumanna

3. Sömu kröfur verði gerðar til ferðaþjónustuaðila á þjóðlendum og í þjóðgörðum með nýtingarsamningum við sveitarfélög

4. Menntun leiðsögumanna verði betur tryggð innan menntakerfisins og/eða með stuðningi við Félag fjallaleiðsögumanna

5. Unnið verði áhættumat á jöklum sem nýtt verði til að meta áhættu í skipulögðum jöklaferðum

6. Haldin verði skrá um slys og óhöpp í ferðaþjónustu.

Samantekt starfshópsins verður vísað til nánari úrvinnslu innan starfshóps á vegum menningar- og viðskiptaráðherra um bætt öryggi ferðamanna, en sá starfshópur tók til starfa í september á grundvelli þingsályktunar um ferðamálastefnu og aðgerðaáætlun til 2030 sem samþykkt var í júní sl.

Viðaukar 1-8 með með minnisblaði sem lagt var fyrir ríkisstjórn í morgun:

Jöklaferðir - Viðauki 1.docx

Viðauki 2 - Jöklaferðir.docx

Viðauki 3 - Um skýrslu starfshóps frá 2021.docx

Viðauki 4 - Fyrirkomulag í Noregi.docx

Viðauki 5 - Ferðamálastefna og aðgerðaáætlun hennar.docx

Minnisblað VÍ og HÍ jöklaferðir 09_2024.pdf

Viðauki 7 - Glærukynning VÍ.pdf

20241001 - Vatnajökulsþjóðgarður - Íshellaferðir og jöklagöngur - samantekt.pdf

Prime Minister's Office of Iceland published this content on November 08, 2024, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on November 08, 2024 at 14:50 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]