Government Offices of Iceland

04/14/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/14/2026 10:23

Að grafa sig í fönn er ekki valkostur

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir það ekki valkost fyrir Ísland að grafa sig í fönn við núverandi stöðu alþjóðamála. Í hverfulum heimi á tímum mikillar óvissu eigi þjóðin þess í stað að skoða alla valkosti sem ýtt geta undir öryggi landsins og boðuð þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sé liður í því.

Þetta sagði utanríkisráðherra í ávarpi sínu á árlegri ráðstefnu Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands, utanríkisráðuneytisins og Norræna hússins, Alþjóðasamvinna á krossgötum: Hvert stefnir Ísland?, sem fram fór í dag.

"Gleymum ekki að frumskylda ríkisvaldsins er að tryggja öryggi þegnanna og samfélagsins. Óvissan er mikil í hverfulum heimi. Þá er ekki hægt að grafa sig í fönn. Það er ekki valkostur." sagði Þorgerður Katrín í ávarpi sínu. "Það þjónar heldur ekki að mínu mati hagsmunum Íslands að bíða þess að veðrinu sloti. Við okkur blasir þvert á móti að greina þá stöðu sem upp er komin. Endurmeta okkar stað í veröldinni. Taka af skarið á þeim grunni. Ekki liggja lágt. Það er ekki í samræmi við íslensku leiðina."

Utanríkisráðherra gerði að umtalsefni niðurstöður nýrrar viðhorfskönnunar sem Maskína framkvæmir árlega fyrir utanríkisráðuneytið, þar sem kemur fram að 84 prósent landsmanna hafi meiri áhyggjur af þróun alþjóðamála nú en fyrir ári síðan. Þá hefur 71 prósent aðspurða miklar áhyggjur af þróun alþjóðamála á sama tíma og 88 prósent þátttakenda segjast upplifa Ísland sem öruggt land.

"Sú niðurstaða [...] endurspeglar hins vegar að mínu mati ákveðna tilhneigingu til að vilja grafa sig í fönn," sagði Þorgerður Katrín. "Að halda fast í haldreipi þess sem er, á grundvelli þess misskilnings að þetta sé tímabundið ástand, eitthvað slys, og að allt verði sem áður einn daginn."

Þannig hafi heyrst úr ranni stjórnmálanna undanfarin misseri að Ísland eigi að liggja lágt og ekki hafa sig of mikið í frammi. Ísland eigi ekki að taka þátt í málflutningi fyrir Alþjóðadómstólnum um skilgreiningu á þjóðarmorði, af ótta við að það veki athygli stærri ríkja á Íslandi. Þá hafi stjórnmálamenn og aðrir áhrifamenn í samfélaginu haft áhyggjur af málflutningi Íslands þegar málefni Grænlands og ásælni Bandaríkjaforseta stóð sem hæst. "Í máli sem varðaði okkar næstu nágranna og nánar vinaþjóðir vildu þeir að við hvísluðum. Það fannst mér leitt," sagði Þorgerður Katrín.

Núverandi staða alþjóðamála og sú mikla óvissa sem uppi er, meðal annars um framtíð bandalaga til áratuga, kalli á að Ísland meti stöðu sína. "Stjórnarandstaðan hefur haldið því fram að það eigi alls ekki að við núverandi aðstæður að leyfa almenningi að velta fyrir sér kostum þess að ganga í Evrópusambandið. Það megi alls ekki hrófla við neinu, og þó eru hlutirnir einfaldlega á hreyfingu nú þegar. Það blasir við öllum," sagði Þorgerður Katrín. "Við slíkar aðstæður er ábyrgðarhluti af þeim að ætla að loka dyrum."

Government Offices of Iceland published this content on April 14, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on April 14, 2026 at 16:23 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]