Government Offices of Iceland

06/03/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/03/2026 08:21

Samstarf við sólarorkufyrirtæki í Síerra Leóne: Þúsundir heimila fá rafmagn í fyrsta sinn

Í Kambía-héraði í norðurhluta Síerra Leóne hafa nú yfir 7.500 heimili fengið aðgang að raforku í fyrsta sinn, en áætlað er að öll heimili í héraðinu muni fá aðgang að raforku í gegnum verkefnið á næstu árum. Um er að ræða samstarfsverkefni Íslands, Írlands, Þýskalands og Evrópusambandsins sem miðar að því að veita fátækum heimilum aðgang að raforku með nýstárlegum sólarorkulausnum. Fyrirtækið Easy Solar sér um uppsetningu og viðhald búnaðarins og er verkefnið jafnframt tilraun til að efla samstarf við einkafyrirtæki í þróunarsamvinnu.

Síerra Leóne er eitt þriggja samstarfsríkja Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu en hin eru Malaví og Úganda. Íslensk stjórnvöld hafa átt í samstarfi um þróunarsamvinnu í Síerra Leóne síðan árið 2018 og var sendiráð formlega opnað í maí 2024. Verkefni íslenskra stjórnvalda í landinu eru fjölbreytt en lúta m.a. að því að styrkja uppbyggingu grunnþjónustu í afskekktum fiskveiðisamfélögum. Unnið er í samræmi við stefnu Íslands um alþjóðlega þróunarsamvinnu sem samþykkt var á Alþingi 2024 og er núgildandi stefna fyrir árabilið 2024-2028. Miðar allt starf Íslands í þróunarsamvinnu að því að stuðla að útrýmingu fátæktar, virðingu fyrir mannréttindum og bættum lífsskilyrðum.

Síerra Leóne er meðal tíu fátækustu ríkja heimsins samkvæmt mælikvörðum Þróunarhjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNDP). Raforkuinnviðir í Síerra Leóne eru mjög veikburða og aðeins um 14% heimila eru tengd við aðaldreifikerfi landsins. Rafmagnsaðgangur þeirra heimila sem tengd eru kerfinu er jafnframt óstöðugur þar sem viðvarandi rafmagnsleysi er algengt í landinu. Staðan er verst í dreifbýli þar sem flest heimila hafa engan aðgang að raforku. Útbreiðsla dreifikerfisins til þessara svæða er bæði kostnaðarsöm og tímafrek. Af þeim sökum hefur verið lögð áhersla á að þróa lausnir sem mæta orkuþörf afskekktra samfélaga með endurnýjanlegum orkugjöfum á borð við sólarorku.

Verkefnið sem Ísland tekur nú þátt í byggir á þeirri nálgun að horfa á orku sem þjónustu, þ.e. notendur þurfa ekki að greiða háan stofnkostnað fyrir sólarsellubúnað heldur greiða mánaðarlegt gjald sem veitir aðgang að lýsingu, útvarpi, hleðslutæki fyrir farsíma og reglubundnu viðhaldi.

Írsku hjálparsamtökin Trócaire annast framkvæmd verkefnisins í samstarfi við innlend samtök og Easy Solar. Sólarorkubúnaður hefur nú verið settur upp á rúmlega 7.500 heimilum í fjórum sýslum Kambía-héraðs, en stefnt er að því að heimili í öllum tíu sýslum héraðsins fái aðgang að sólarorku í gegnum verkefnið.

Svarar brýnni þörf í samfélögunum

Á Vesturlöndum er aðgangur að rafmagni og orku ein af undirstöðum daglegs lífs og því er ekki að undra að verkefnið í Kambía-héraði muni koma til með að breyta miklu fyrir íbúa, s.s. til að tryggja lýsingu á heimilum fólks og skapa þannig aðstæður til að börn geti lært heima eftir að myrkur skellur á. Þá aukist atvinnumöguleikar þar sem fólk geti unnið lengur fram eftir degi og öryggi heimila hafði batnað þar sem lýsingin fæli bæði frá þjófa og villt dýr.

"Einn af hornsteinum þróunarsamvinnu Íslands er að efla viðnámsþrótt og bæta lífskjör viðkvæmra samfélaga í samstarfslöndum, meðal annars með því að bæta aðgengi að hreinni orku á viðráðanlegu verði. Verkefni sem þetta fellur mjög vel að áherslum Íslands í Síerra Leóne. Það er sérstaklega ánægjulegt að heyra frá íbúum að verkefnið sé að skila áþreifanlegum ávinningi svo fljótt, meðal annars auknu öryggi og bættum tækifærum barna til náms og fullorðinna til atvinnu. Þá er einnig jákvætt að heyra að sífellt fleiri heimili óski eftir að verða hluti af verkefninu, sem endurspeglar veruleg og vaxandi jákvæð áhrif þess," sagði Pálína Matthíasdóttir, deildarstjóri tvíhliða þróunarsamvinnu í utanríkisráðuneytinu.

Government Offices of Iceland published this content on June 03, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 03, 2026 at 14:21 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]