The President of Iceland

01/09/2025 | Press release | Distributed by Public on 01/09/2025 12:47

Bjartýnisverðlaun

Fréttir | 09. jan. 2025

Bjartýnisverðlaun

Forseti afhendir Íslensku bjartsýnisverðlaunin við hátíðlega athöfn á Kjarvalsstöðum. Í ár voru þau veitt Unnsteini Manuel Stefánssyni, tónlistamanni og handritshöfundi.

Forseti Íslands hefur frá upphafi verið verndari Bjartsýnisverðlaunanna, sem hafa verið afhent árlega frá árinu 1981, en stofnað var til þeirra í forsetatíð Vigdísar Finnbogadóttur. Þau eru í senn viðurkenning og hvatning fyrir íslenska listamenn og leitast er við að gæta jafnræðis milli listgreina. Frá árinu 2000 hefur ÍSAL álverið í Straumsvík verið bakhjarl verðlaunanna og fá handhafar þeirra áletraðan verðlaunagrip úr áli frá ÍSAL auk einnar og hálfrar milljónar króna í verðlaunafé.

Margverðlaunaður fyrir fjölbreytt störf

Í umsögn dómnefndar segir að Unnsteinn Manuel hafi á ferli sínum sýnt fram á ótvíræða listræna hæfileika og fjölhæfni. Hann hafi fundið farvegi til þess að þroskast og takast á við nýjar áskoranir og fjölbreytt verkefni og taki þátt bæði í menningartengdum verkefnum í ýmsum listgreinum en leggi jafnframt mikilvægum góðgerðar- og samfélagsmálum lið. "Þar á ofan miðlar hann af þekkingu sinni og reynslu til yngri kynslóða. Unnsteinn Manuel Stefánsson er verðugur fulltrúi Íslensku bjartsýnisverðlaunanna árið 2024," segir í umsögninni.

Unnsteinn hefur komið víða við heimi lista á Íslandi. Hann hefur lengst af verið þekktastur sem tónlistarmaður og hefur meðal annars starfað með hljómsveitinni Retro Stefson frá árinu 2006 auk þess að gefa út tónlist undir eigin nafni og í samstarfi við fleiri. Undanfarin ár hefur hann menntað sig á sviðshöfundabraut í Listaháskóla Íslands og handritaskrifum fyrir sjónvarp í Kvikmyndaskólanum í Berlín.

Hann hefur komið að framleiðslu, stjórn og umsjón efnis fyrir sjónvarp um árabil þar með taldar stórar alþjóðlegar sjónvarpsútsendingar frá Íslandi. Á síðustu misserum hefur hann tekið þátt í ýmsum verkefnum á sviði leikhúsa sem tónskáld, tónlistarstjóri, hljóðhönnuður og handritshöfundur og er um þessar mundir að vinna að sýningunum Lukku í Þjóðleikhúsinu og Ungfrú Ísland í Borgarleikhúsinu.

Unnsteinn er margverðlaunaður fyrir störf sín í listum. Hann hefur þrisvar sinnum hlotið Edduverðlaunin og jafnoft Íslensku tónlistarverðlaunin. Einnig hlaut hann Grímuverðlaun árið 2023. Auk þess að vera sjálfur virkur listamaður á ýmsum sviðum hefur hann lagt áherslu á að miðla þekkingu sinni til yngri kynslóða. Frá árinu 2007 hefur hann hefur kennt börnum á grunn- og framhaldsskólastigi tónlist auk þess að taka virkan þátt í verkefnum sem tengjast ungu fólki og tónlist. Frá árinnu 2012 hefur hann verið dómari og virkur þátttakandi í Upptaktinum í Hörpu, tónsköpunarverðlaunum barna og ungmenna. Hann kennir námskeið í skapandi hugsun við Háskólann á Bifröst og hefur komið að fleiri verkefnum á sviði menntunar fyrir ungt fólk.

Unnsteinn hefur lagt ýmsum góðgerðar- og samfélagslegum verkefnum lið og var m.a. verndari UN Women á Íslandi, situr í stjórn Barnaheilla og var í ráðgjafarnefnd Tónlistarborgarinnar Reykjavíkur fyrir hönd borgarstjóra Reykjavíkur.

Dómnefnd Íslensku bjartsýnisverðlaunanna skipa: Þórunn Sigurðardóttir, Magnús Geir Þórðarson, Sif Gunnarsdóttir og Rannveig Rist.

Deila
The President of Iceland published this content on January 09, 2025, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on January 09, 2025 at 18:47 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]