Prime Minister's Office of Iceland

04/09/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/09/2026 15:46

Forsætisráðherra ávarpaði ársfund Seðlabankans

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra flutti ávarp á ársfundi Seðlabanka Íslands sem fram fór í dag.

Í ávarpi sínu sagði forsætisráðherra að brýnasta verkefnið í efnahagsmálum væri að brjótast út úr stöðnun og hefja nýja sókn til að bæta lífskjör þjóðarinnar með auknum hagvexti.

"Til skemmri tíma litið er hins vegar meginverkefni okkar að vinna bug á þrálátum verðbólguþrýstingi og að endurheimta trúverðugleika sem heldur verðbólguvæntingum í skefjum. Aðeins þannig náum við jafnvægi á ný í þjóðarbúskapnum og leggjum grunn að nýrri sókn," sagði forsætisráðherra.

Ríkisstjórnin muni gera sitt með hallalausum fjárlögum og fjármálaáætlun sem skilar afgangi af ríkisrekstri á hverju einasta ári áætlunarinnar.

Forsætisráðherra ræddi einnig þær áskoranir sem stríðsátök og óvissa í alþjóðamálum hafa í för með sér og boðaði í því samhengi tímabundnar aðgerðir í efnahagsmálum til að taka á þeirri stöðu sem upp er komin.

Þá ræddi forsætisráðherra stöðuna á vinnumarkaði og nýja atvinnustefnu Íslands til 2035.

Ávarp Kristrúnar Frostadóttur á ársfundi Seðlabanka Íslands, 9. apríl 2026

Prime Minister's Office of Iceland published this content on April 09, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on April 09, 2026 at 21:46 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]