Government Offices of Iceland

03/02/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/02/2026 11:55

Tvö frumvörp í samráðsgátt á grundvelli aðgerðaáætlunar fyrir fjölmiðla

Stuðningskerfi við fjölmiðla fest í sessi

Drög að frumvarpi um breytingar á stuðningskerfi við einkarekna fjölmiðla hafa verið birt í samráðsgátt stjórnvalda. Lagt er til að stuðningskerfi við fjölmiðla verði fest í sessi til fimm ára, og að skerpt verði á einstaka skilyrðum. Jafnframt verði veittur viðbótarstuðningur til fjölmiðla sem sinna daglegri fréttaþjónustu í almannaþágu á landsvísu. Til að hljóta viðbótarstuðning þurfa fjölmiðlar að uppfylla sértæk skilyrði, m.a. um fjölda starfsmanna, fjölbreytt efnistök með almenna og breiða skírskotun, kosningaumfjöllun á landsvísu og viðbragðsgetu allan sólarhringinn. Gert er ráð fyrir að staðbundnir fjölmiðlar utan höfuðborgarsvæðis fái áfram 20% álag á fjárhæð styrks.

Frumvarpsdrög voru unnin á grundvelli aðgerðaáætlunar fyrir fjölmiðla frá 19. desember 2025. Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) hefur verið upplýst um efni frumvarpsins og verður aflað endanlegs samþykkis stofnunarinnar áður en lögin taka gildi, verði frumvarpið samþykkt.

Upplýsingar um málið í samráðsgátt stjórnvalda

Aðgerð til að sporna gegn sjóræningjastarfsemi

Frumvarpsdrög um hækkun refsiramma höfundalaga hafa verið birt í samráðsgátt. Efni frumvarpsins er í samræmi við aðgerðaáætlun fyrir fjölmiðla frá 19. desember 2025.

Færst hefur í aukana að höfundaréttarvörðu efni sé streymt og því miðlað með ólögmætum hætti, einkum í gegnum IP-sjónvarp og svokallaða Plex-myndþjóna. Styrkja þarf viðbrögð lögreglu við ábendingum um stórfelld höfundarréttarbrot og grípa til ráðstafana svo að takmarka megi svokallaða sjóræningjastarfsemi á höfundaréttarvörðu efni. Liður í því er að leggja til hækkun á refsiramma höfundalaga þannig að hann endurspegli betur alvarleika stórfelldra brota gegn höfundalögum og sé betra samræmi við refsiramma fyrir samsvarandi brot á Norðurlöndunum og í Evrópusambandinu.

Með frumvarpinu er lagt til að hámarksrefsing vegna stórfelldra eða ítrekaðra brota gegn höfundalögum verði sex en samkvæmt gildandi lögum er hámarksrefsing 2 ár.

Upplýsingar um málið í samráðsgátt stjórnvalda

Government Offices of Iceland published this content on March 02, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 02, 2026 at 17:55 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]