Government Offices of Iceland

03/20/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/20/2026 12:25

Samráð við Þýskaland um varnarmál og málþing um varnir á norðurslóðum ​

Þróun öryggismála, varnarviðbúnaður Atlantshafsbandalagsins og samstarf Íslands og Þýskalands í öryggis- og varnarmálum, með áherslu á viðbúnað á Norður-Atlantshafi, bar hæst í samráði Íslands og Þýskalands um varnarmál sem haldið var í Berlín í gær. Jónas Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu, og Dr. Jasper Wieck, skrifstofustjóri í þýska varnarmálaráðuneytinu, leiddu viðræðurnar en samráðið fór fram á grundvelli sameiginlegrar yfirlýsingar ríkjanna um öryggis- og varnarmál sem skrifað var undir í Reykjavík í október síðastliðnum í Íslandsheimsókn varnarmálaráðherra Þýskalands, Boris Pistorius.

Sendiráð Íslands í Berlín stóð svo í dag fyrir málþingi um öryggismál á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, í samstarfi við sendiráð Danmerkur, Kanada og Noregs, auk þýska varnarmálaráðuneytisins og með stuðningi Norrænu ráðherranefndarinnar. Yfirmenn stefnumála í varnarmálaráðuneytum skipuleggjendanna ræddu hvaða leiðir væru helst færar til að bregðast við breytingum á ógnarumhverfi svæðisins. Fulltrúar þýska og norska flotans, auk deildarstjóra aðgerðadeildar varnarmálaskrifstofu, fjölluðu um hvaða aðgerðir væru í gangi og hvernig ætti að koma pólitískum áherslum til framkvæmda. Loks voru fræðimenn í aðalhlutverki í umræðu um breytt umhverfi á norðurslóðum vegna loftlagsbreytinga og þeirra áhrifa sem búast mætti við á öryggisumhverfið á norðurslóðum. Málþingið var vel sótt og komust færri að en vildu.

Government Offices of Iceland published this content on March 20, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 20, 2026 at 18:25 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]