03/25/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/25/2026 09:24
Þróun öryggis- og varnarmála á norðurslóðum og aukin sameiginleg stöðuvitund var í forgrunni fundar Arctic Security Forces Roundtable (ASFR) sem haldinn var í Keflavík 24.-25. mars. Samhæfing varnaraðgerða og áframhaldandi þróun sameiginlegra varna á svæðinu voru einnig til umræðu, einkum með tilliti til getu og viðbragðskosta á svæðinu. Þátttakendum gafst einnig færi á að kynna sér starfsemi á öryggissvæðinu í Keflavík.
Í samræmi við stefnu í varnar- og öryggismálum sem Alþingi samþykkti í febrúar leggur Ísland áherslu á varnarsamstarf á norðurslóðum og er þar virkur þátttakandi. Samráðið sem hér er vísað til, Arctic Securitry Forces Roundtable, var stofnað árið 2010 og hefur það að markmiði að efla gagnkvæman skilning, samhæfingu og upplýsingamiðlun á sviði öryggis- og varnarmála á norðurslóðum. ASFR er samstarfsvettvangur bandalagsríkjanna sjö á norðurslóðum, ásamt fjögurra áheyrnarríkja (Bretlands, Frakklands, Hollands og Þýskalands) sem eru mikilvægir samstarfsaðilar á svæðinu. Noregur og Bandaríkin, í gegnum Evrópuherstjórn Bandaríkjanna (US EUCOM), fara sameiginlega með umsjón samstarfsins en Ísland var gestgjafi fundarins að þessu sinni. Þá var fulltrúum frá Norður-Ameríkuherstjórn Bandaríkjanna (US NORTHCOM) og aðgerðaherstjórnar Atlantshafsbandalagsins í Norfolk einnig boðið að taka þátt í fundinum.