Government Offices of Iceland

03/06/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/06/2026 09:21

Ísland og níu Evrópuríki efla samstarf um vernd almennra borgara

Dómsmálaráðuneytið hefur undirritað viljayfirlýsingu (e. Memorandum of Understanding) varðandi samstarf um verndun almennra borgara. Auk Íslands eiga Danmörk, Eistland, Finland, Lettland, Litáen, Noregur, Pólland, Svíþjóð og Þýskaland aðild að yfirlýsingunni.

Markmið yfirlýsingarinnar er að bregðast við breyttu öryggisumhverfi í Evrópu en á grundvelli aðildar ríkjanna að Atlantshafsbandalaginu (NATO) og landfræðilegrar nálægðar hyggjast aðilar yfirlýsingarinnar efla samstarf sitt til að mæta þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir á skilvirkan hátt.

"Öryggi almennings er frumskylda ríkisins. Með þessari viljayfirlýsingu erum við að efla samstarf við nágrannaríki okkar þannig að við getum brugðist hratt við ef alvarlegt hættuástand skapast. Reynsla síðustu ára sýnir okkur að slík samvinna er lykillinn að því að tryggja öryggi almennings," segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Samkvæmt yfirlýsingunni stefna aðilar að því að efla sameiginlega getu til að vernda almenna borgara í alvarlegu hættuástandi, meðal annars með auknu samstarfi um að efla sameiginlega getu til þess að takast á við ófyrirséða fólksflutninga. Ríkin munu í sameiningu skipuleggja hvernig flutningur fólks yfir landamæri á landi geti farið fram í þessum aðstæðum. Þá er stefnt að því að auka upplýsingaskipti og koma á fót og viðhalda sameiginlegum grundvallarviðmiðum í áætlanagerð og samhæfðu verklagi til skilvirkrar stjórnunar undir slíkum kringumstæðum.

Government Offices of Iceland published this content on March 06, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 06, 2026 at 15:21 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]