Government Offices of Iceland

04/08/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/08/2026 05:18

Valgerður María tekur við embætti skrifstofustjóra á skrifstofu alþjóðamála

Dómsmálaráðherra hefur skipað Valgerði Maríu Sigurðardóttur í embætti skrifstofustjóra á skrifstofu alþjóðamála í dómsmálaráðuneytinu. Valgerður mun flytjast úr embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála á grundvelli heimildar í lögum um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins. Hún tekur við embættinu 1. maí nk.

Valgerður lauk embættisprófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2008 og diplómu í afbrotafræði frá Háskóla Íslands árið 2015. Hún hefur frá árinu 2023 gegnt embætti varaformanns kærunefndar útlendingamála. Valgerður starfaði áður í dómsmálaráðuneytinu en hún hóf störf þar árið 2008 og starfaði sem lögfræðingur á skrifstofu almannaöryggis til ársins 2015. Á árunum 2015 til 2019 starfaði hún í sendiráði Íslands í Brussel sem sendiráðunautur dómsmálaráðuneytisins þar sem hún annaðist meðal annars hagsmunagæslu fyrir hönd Íslands gagnvart Evrópusambandinu á málefnasviðum dómsmálaráðuneytisins, einkum vegna Schengen-samstarfsins.

Frá árinu 2019 til ársins 2021 starfaði hún sem lögfræðingur á skrifstofu almanna- og réttaröryggis í dómsmálaráðuneytinu. Helstu verkefni hennar voru meðal annars gerð nýrra heildarlaga um Schengen-upplýsingakerfið á Íslandi. Frá árinu 2021 til ársins 2023 starfaði hún sem teymisstjóri útlendingamála á skrifstofu réttinda einstaklinga í dómsmálaráðuneytinu þar sem hún fór með yfirumsjón útlendingamála.

Skrifstofa alþjóðamála hefur umsjón með þeim málaflokkum í íslenskri stjórnsýslu er varða afbrotavarnir, landamæravörslu og málefni útlendinga. Skrifstofan sinnir stefnumótun á málefnasviðinu, hefur umsjón með löggjöf og vinnur að því að framkvæmd hennar sé í samræmi við lög og markmið ráðherra, með áherslu á skilvirkni og samræmda stjórnsýslu.

Jafnframt gegnir skrifstofan mikilvægu hlutverki í samskiptum við Alþingi, hagsmunaaðila og erlenda samstarfsaðila, og sinnir fjölbreyttum málaflokkum, svo sem baráttu gegn skipulagðri brotastarfsemi, peningaþvætti, netbrotum og hryðjuverkum, auk landamæravörslu, Schengen-samstarfs, ríkisborgararéttar, dvalarleyfa og alþjóðlegrar verndar.

Government Offices of Iceland published this content on April 08, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on April 08, 2026 at 11:18 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]