05/15/2025 | Press release | Distributed by Public on 05/15/2025 10:14
Forseti tekur þátt í Nýsköpunarviku, Iceland Innovation Week, árlegum viðburði sem fram fer í Reykjavík. Markmið nýsköpunarviku er að efla frumkvöðlastarfsemi og tækniframfarir á Íslandi. Þar gefst bæði íslenskum og alþjóðlegum fyrirtækjum og frumkvöðlum kostur á að standa fyrir nýsköpunartengdum viðburðum, fyrirlestrum og uppákomum af ýmsu tagi.
Á lokadegi nýsköpunarviku fór fram dagskrá í Kolaportinu þar sem forseti tók þátt í samtali við fjölmiðlakonuna Freyu Patti. Rætt var um hlutverk nýsköpunar í framtíðarforystu, loftslagsmál og aðrar áskoranir undir yfirskriftinni "The Future We Choose-Leadership, Climate, and the Role of Innovation".