Government Offices of Iceland

06/19/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/19/2026 05:24

Norðurlöndin efla samstarf á sviði fæðuöryggis og áfallaþols

Norðurlöndin hafa ákveðið að stíga mikilvæg skref til að styrkja sameiginlegt fæðuöryggi á tímum aukinnar óvissu í alþjóðamálum. Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, sótti fund norrænu ráðherranefndarinnar í Færeyjum þann 10. júní sl. þar sem samstarfið var formgert af hálfu hlutaðeigandi ráðherra Norðurlandanna.

Samstarfinu er ætlað að tryggja öruggara matvælaframboð á Norðurlöndunum, meðal annars með því að tryggja þekkingarmiðlun og samræmingu milli landa. Samstarfið kemur í framhaldi af Karlstad-yfirlýsingunni frá árinu 2024 þar sem matvælaráðherrar Norðurlandanna samþykktu að styrkja samstarf ríkjanna um fæðuöryggi.

Fyrsta verkefnið í þessu nýja samstarfi felst í að gera þriggja ára vinnuáætlun með tilteknum samstarfssviðum. Markmiðið er að samstarfið verði síðan fastur hluti af norrænu samstarfi frá og með árinu 2028.
Government Offices of Iceland published this content on June 19, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 19, 2026 at 11:24 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]