02/03/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/03/2026 09:51
Framkvæmdastjórnarfundur Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) fer nú fram í Genf, þar sem aðildarríki WHO fjalla um lykilmálefni í alþjóðlegu heilbrigðissamstarfi. Hægt er að fylgjast með fundinum í beinu streymi á vef WHO.
Á fundinum tók Ísland undir sameiginlega yfirlýsingu um forvarnir og viðbrögð til að sporna gegn langvinnum sjúkdómum. Belgía hafði frumkvæði að yfirlýsingunni, sem var flutt undir dagskrárlið 6 um eftirfylgni pólitískrar yfirlýsingar allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna um þessi málefni. Auk Íslands stóðu að yfirlýsingunni Holland, Slóvenía, Portúgal, Eistland, Finnland, Lettland og Írland.
Þjóðirnar leggja áherslu á að hraða innleiðingu kostnaðarhagkvæmra og gagnreyndra aðgerða WHO gegn helstu áhættuþáttum langvinnra sjúkdóma. Benda þær meðal annars á vaxandi áskoranir tengdar tóbaks- og nikótínnotkun, skaðlegri neyslu áfengis, óhollu mataræði og hreyfingarleysi, sem og áhrif stafrænna miðla á heilsu barna og ungmenna. Einnig leggja þær áherslu á mikilvægi sterkrar stjórnsýslu, gagnsæis og verndar gegn hagsmunaárekstrum, ekki síst í ljósi viðskiptalegra áhrifaþátta á lýðheilsu.
Með þátttöku sinni í sameiginlega erindinu undirstrikaði Ísland stuðning sinn við alþjóðlegt samstarf á sviði forvarna, lýðheilsu og geðheilbrigðis, í samræmi við markmið WHO og heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun.
Beint streymi frá framkvæmdastjórnarfundi WHO má nálgast hér:
https://www.who.int/about/governance/executive-board/executive-board-158th-session