02/17/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/17/2026 06:50
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra fundaði með utanríkisráðherra Japans, Toshimitsu Motegi, í Tókýó í dag. Þar ræddu ráðherrarnir tvíhliða samskipti ríkjanna, viðskiptamál, öryggismál í Evrópu og málefni Úkraínu, norðurslóðamál og stöðuna á Indó-Kyrrahafssvæðinu.
Þorgerður Katrín er stödd í opinberri vinnuheimsókn í Japan.Hún fundaði einnig í dag með Takuo Komori, vararáðherra í utanríkisviðskipta-, efnahags og iðnaðarráðuneyti Japans (METI). Þar voru viðskipti ríkjanna og efnahagslegt öryggi í víðu samhengi til umræðu.
"Japan er eitt helsta samstarfsríki okkar í Asíu, ekki síst á sviði viðskipta, en í ár verða bæði liðin 70 ár frá því að ríkin tóku upp formlegt stjórnmálasamband, og aldarfjórðungur frá gagnkvæmri stofnun sendiráða í Reykjavík og Tókýó," segir Þorgerður Katrín. "Japan gegnir lykilhlutverki í virðiskeðju alþjóðlegra framleiðslufyrirtækjaog býr yfir gríðarlegri tækniþekkingu og sterkum innviðum. Við eigum í góðu sambandi við Japan og það er mikilvægt fyrir íslenska hagsmuni þar sem ríkið er eitt af fimm stærstu hagkerfum heims."
Dagskrá utanríkisráðherra heldur áfram í vikunni, en hún mun m.a. hitta stjórn íslenska viðskiptaráðsins í Japan, fulltrúa íslenskra fyrirtækja í Tókýó og forystukonur á sviði jafnréttismála.