02/18/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/18/2026 08:18
Michael Claesson, hershöfðingi og yfirmaður sænska heraflans, heimsótti Íslandi í vikunni í tilefni þess að nú sinnir flugsveit á vegum sænska flughersins loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins hérlendis í fyrsta skipti.
Hershöfðinginn heimsótti landa sína á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og kynnti sér aðstæður, umsvif og samvinnu varnarmálasviðs Landhelgisgæslunnar og Atlantshafsbandalagsins á vellinum.
Þá átti hann fund með Jónasi G. Allanssyni, skrifstofustjóra varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, þar sem gjöfult og náið samstarf þjóðanna hvað varðar öryggismál á norðurslóðum sem og á vettvangi Atlantshafsbandalagsins var til umræðu.
"Þjóðir okkar deila einstöku vinasambandi og aðild Svíþjóðar að Atlantshafsbandalaginu hefur dýpkað samstarf okkar er kemur að öryggis- og varnarmálum enn frekar og þannig styrkt sameiginlegar varnir bandalagsins á norðurslóðum," segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. "Það má segja að koma sænsku flugveitarinnar til Íslands til að sinna loftrýmisgæslu Atlantshafsbandalagsins loki norræna hringnum, því nú hafa öll Norðurlöndin sinnt þessu mikilvæga verkefni fyrir okkur Íslendinga sem og bandalagið í heild sinni."
Yfirmaður sænska heraflans er afar ánægður með viðtökurnar á Íslandi.
"Sænsku flugsveitinni hefur verið vel tekið á Íslandi og af mikilli fagmennsku og hlýju. Samstarf ríkjanna við loftrýmisgæsluverkefni Atlantshafsbandalagsins gengur mjög vel og einkennist af gagnkvæmu trausti og sameiginlegum skilningi á verkefninu," segir Michael Claesson hershöfðingi. "Ég hlakka til að halda áfram samtalinu við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins til að þróa enn frekar okkar nána samstarf. Það hvílir á sterkum grunni og traustum tengslum milli ríkja okkar sem hægt er að byggja á."