Government Offices of Iceland

08/27/2026 | Press release | Distributed by Public on 08/27/2026 09:55

Sameiginlegur vinnufundur Loftslagsráðs og verkefnisstjórn loftslagsaðgerða

Fulltrúar í Loftslagsráði og verkefnisstjórn stjórnvalda um loftslagsaðgerðir komu saman til sameiginlegs vinnufundar í gær, og er það í fyrsta sinn sem hóparnir tveir funda með þessum hætti. Markmið fundarins var að styrkja samtal og samstarf þeirra sem koma að mótun, framkvæmd og mati á loftslagsaðgerðum stjórnvalda og skapa vettvang fyrir miðlun þekkingar og sjónarmiða.

Á fundinum fluttu erindi dr. Bjarni Már Magnússon, sérfræðingur í þjóðarétti og umhverfis- og loftslagsrétti en hann fjallaði um nýlega álitsrgerð loftslagsráðs um ráðgefandi álit Alþjóðadómstólsins um skyldur ríkja vegna loftslagsbreytinga og þýðingu þess fyrir Ísland.Dr. Sigrún Ólafsdóttir, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands sem fjallaði um samfélagslegt mat loftslagsaðgerða og áhrifa þeirra á mismunandi hópa samfélgasins. dr. Stefan Rahmstorf, prófessor í hafeðlisfræði við Háskólann í Potsdam og fjallaði um stöðu þekkingar og nýjustu rannsóknir á veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) og þau áhrif sem breytingar á hringrásinni geta haft á svæðinu í kringum Ísland.

Fundurinn var meðal annars hugsaður til að efla kynni og þekkingarmiðlun milli Loftslagsráðs og verkefnisstjórnar og styrkja samtal þeirra. Formleg tengsl þeirra eru mikilvæg enda leggur Loftslagsráð faglegt mat á aðgerðaráætlanir sem verkefnisstjórnin mótar og bregst við skýrslum hennar um framgang loftslagsaðgerða.

Verkefnisstjórn loftslagsaðgerða mun í september birta skýrslu um stöðu loftslagsaðgerða. Í frumvarpi til nýrra loftslagslaga er gert ráð fyrir að eitt af meginhlutverkum Loftslagsráðs verði að bregðast við stöðuskýrslunni með faglegu mati.


Government Offices of Iceland published this content on August 27, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on August 27, 2026 at 15:56 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]