03/17/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/17/2026 07:18
Tillögugerð starfshóps forsætisráðherra um samþætta þjónustu við börn með vímuefnavanda var kynnt á fundi ríkisstjórnarinnar í dag. Í skýrslu starfshópsins eru lagðar fram sjö tillögur sem miða að því að styrkja þjónustu við börn með vímuefnavanda.
Hlutverk starfshópsins var að rýna stöðu þjónustu við börn með vímuefnavanda og leggja fram tillögur um úrbætur. Sérstök áhersla var lögð á börn með flókinn og samsettan vanda sem þurfa sérhæfða og samþætta þjónustu.
Í skýrslunni kemur fram að þrátt fyrir að ýmis mikilvæg úrræði séu til staðar sé þjónusta við þennan hóp að mörgu leyti brotakennd eins og hún birtist börnum og fjölskyldum þeirra. Helstu áskoranir lúta meðal annars að óskýrri ábyrgðarskiptingu milli kerfa, takmarkaðri samhæfingu barnaverndar og heilbrigðisþjónustu og skorti á sérhæfðum úrræðum fyrir börn með samsettan vanda.
Tillögur starfshópsins lúta að því að efla samhæfingu og samþættingu þjónustu. Þar á meðal eru tillögur um að skýra lagalegan grundvöll aðkomu heilbrigðisþjónustu í vistunarúrræðum barnaverndaryfirvalda, koma á fót stýrihópi um framtíðarskipulag meðferðarúrræða, efla eftirlit með meðferðarúrræðum og tryggja að börn með vímuefnavanda hafi aðgang að sérhæfðri meðferð þegar þörf krefur, þ.m.t. erlendis.
Jafnframt er lagt til að þróuð verði sérhæfð heilbrigðisþjónusta, meðal annars með uppbyggingu fíknigeðdeildar fyrir börn og að sett verði á fót samþætt matsteymi sem metur þjónustuþörf barna og leggur til viðeigandi úrræði.
Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum í dag tillögu forsætisráðherra um skipun stýrihóps sem hafi það hlutverk að fylgja eftir tillögum starfshópsins og vinna að frekari útfærslu þeirra í samstarfi við viðkomandi ráðuneyti og stofnanir.
Samþætt þjónusta við börn með vímuefnavanda - Tillögugerð starfshóps forsætisráðherra