05/06/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/06/2026 09:56
Tveggja daga fundi varnarmálaráðherra Norðurlandanna (NORDEFCO) sem fram fór í Þrándheimi lauk í dag. Fundurinn var sá fyrsti í formennskutíð Noregs á árinu og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók þátt í fundinum.
Ræddu ráðherrarnir framlag ríkjanna til varnar- og öryggismála í breyttu öryggisumhverfi Evrópu og vendinga á alþjóðamálum. Var skýr samstaða um áframhaldandi þróun og eflingu varnarsamstarfs Norðurlandanna og mikilvægi þess að styrkja sameiginlega fælingar- og varnargetu Atlantshafsbandalagsins. Þá var lögð sérstök áhersla á að greiða fyrir samvinnu um heildarvarnir, drónavarnir, geimtækni og liðsflutninga þvert á landmæri.
Nú þegar öll Norðurlöndin eiga aðild að Atlantshafsbandalaginu hafa opnast ný tækifæri til að flétta saman varnaráætlanir, aðgerðir, stjórn og skipulag. Öll ríkin heyra undir undirherstjórn bandalagsins í Norfolk í Bandaríkjunum sem styður við samstarfið til muna.
"Samstarf Norðurlandanna í öryggis- og varnarmálum þróast nú ört í ljósi þeirrar stöðu sem uppi er í alþjóðamálum og það var rauði þráðurinn á fundinum okkar í Þrándheimi," segir Þorgerður Katrín. "Markmiðið er skýrt; að efla varnargetu Norðurlandanna og framlag þeirra til fælingar og varna Atlantshafsbandalagsins, einkum í Norður-Evrópu. Norðurlöndin hafa ólíka styrkleika en sameiginleg gildi og hagsmuni. Milli þeirra hefur ríkt djúpstætt traust til áratuga og það gerir okkur að mjög öflugri heild."
Varnarmálaráðherra Úkraínu, Mykhailo Fedorov, tók þátt í seinni lotu ráðherrafundarins og fór yfir stöðuna á víglínunni og mikilvægi áframhaldandi stuðnings við Úkraínu. Norðurlöndin hafa stutt ötullega við varnarbaráttu Úkraínumanna gegn landvinningastríði Rússlands með því að leggja til búnað, efnahagslegt bolmagn og mannúðaraðstoð. Þá leiða Norðurlöndin, ásamt Eystrasaltsríkjunum og Póllandi, hið svokallaða Camp-Jomsborg verkefni, þar sem úkraínskir hermenn fá þjálfun og viðeigandi búnað.
Á fundinum heimsóttu norrænu ráðherrarnir einnig Ørland-flugherstöðina og rannsóknarsetrið SINTEF Ocean til að kynna sér nýsköpun og tækninýjungar í öryggis- og varnarmálum.
Í sameiginlegri yfirlýsingu norrænu ráðherranna að fundi loknum er áréttað að norrænt varnarsamstarf sé ekki lengur fjarlæg framtíðarsýn, heldur hluti af daglegum veruleika á Norðurlöndunum, sem jafnframt treysti í sessi öryggi Norður-Evrópu.
Í tengslum við ráðherrafundinn undirrituðu Þorgerður Katrín og Tore O. Sandvik, varnarmálaráðherra Noregs nýtt tvíhliða samkomulag Íslands og Noregs um varnarsamstarf.
"Varnarsamstarf Íslands og Noregs byggir á afar öflugum grunni og þetta nýja samkomulag kemur til með að efla það enn frekar og gera okkur betur í stakk búin til að bregðast við örum breytingum á öryggisumhverfi okkar á norðurslóðum og í Evrópu," sagði Þorgerður Katrín að lokinni undirskrift.
Samkomulagið felur í sér heildstæðan ramma utan um frekara samstarf ríkjanna á sviði öryggis- og varnarmála. Samstarfssvið sem tilgreind eru í samkomulaginu ná m.a. til aukins samráðs og samstarfs á sviðum greininga, eftirlits, þróunar á getu og innviðum, gistiríkjastuðnings, áfallaþols og vernd mikilvægra innviða.