03/03/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/03/2026 07:21
3. mars 2026
Samþykktin markar tímamót fyrir öryggi fiskiskipa og sjómanna.
Skilyrði fyrir gildistöku Höfðaborgarsamþykktarinnar um öryggi fiskiskipa (Cape Town Agreement) hafa nú verið uppfyllt og mun samþykktin taka formlega gildi í febrúar 2027. Samþykktin er á vegum Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar (IMO) og markar tímamót í alþjóðlegu öryggi fiskiskipa og sjómanna.
Höfðaborgarsamþykktin felur í sér bindandi og samræmda öryggisstaðla fyrir fiskiskip lengri en 24 metrar, meðal annars hvað varðar hönnun, búnað, stöðugleika, skoðanir og björgunarbúnað. Um 45 þúsund fiskiskip á heimsvísu munu falla undir samþykktina þegar hún tekur gildi.
Samgöngustofa, og einn forveri hennar, Siglingastofnun Íslands, hafa frá upphafi átt virkan þátt í vinnu við samþykktina og framgang hennar innan IMO. Innviðaráðherra og forstjóri Samgöngustofu ásamt fulltrúum ráðuneytis og stofnunarinnar, sátu Aðalþing IMO síðastliðið haust og tóku virkan þátt í umræðum um hvernig hægt væri að fullgilda samninginn. Ísland hefur um árabil verið talið fyrirmyndarríki þegar kemur að öryggi sjómanna og fiskiskipa og hefur sú reynsla nýst í alþjóðlegri samvinnu.
Ísland var meðal stofnaðila samþykktarinnar árið 2013 og hefur frá þeim tíma stutt markvisst við gildistöku hennar. Á þingi IMO í nóvember síðastliðnum hvatti innviðaráðherra aðrar þjóðir til að fullgilda samþykktina, meðal annars í samtölum við fulltrúa ríkja með stóra fiskiskipaflota. Með aðild Argentínu í lok febrúar náðist það lágmark sem þarf til að samþykktin taki gildi.
Með gildistöku samþykktarinnar munu aðildarríki þurfa að innleiða ákvæði hennar í landslög og tryggja að fiskiskip uppfylli samræmdar kröfur, óháð því hvar þau stunda veiðar. Þess er vænst að samþykktin stuðli að auknu öryggi á sjó, bættum vinnuskilyrðum sjómanna, minni mengun og sanngjarnari samkeppni í alþjóðlegum fiskveiðum.
Sjá einnig frétt Stjórnarráðsins og á vef Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar.