02/19/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/19/2026 05:56
Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, sótti fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Kaupmannahöfn sem haldinn var 18. febrúar sl. Atvinnuvegaráðherra sótti fundinn í forföllum Loga Einarssonar sem gegnir stöðu samstarfsráðherra Norðurlanda (MR-SAM).
Á fundinum ræddu samstarfsráðherrarnir um eftirfylgni við tilmæli Norðurlandaráðs til norrænu ríkisstjórnanna um endurskoðun Helsingforssamningsins frá október 2024. Samningurinn er samstarfssamningur milli Danmerkur, Finnlands, Íslands, Noregs og Svíþjóðar.
Finnski lagaprófessorinn Elina Pirjatanniemi kynnti niðurstöður úttektar sem hún vann að beiðni samstarfsráðherranna á lagalegum atriðum í tengslum við hugsanlega endurskoðun samningsins. Góður samhljómur var með löndunum þegar í framhaldinu var rædd tillaga um skipan nefndar til að vinna að tillögum á breytingum á samningnum um aðild Færeyja, Grænlands og Álandseyja, sem áfram verður unnið að. Þá var samtal við forseta Norðurlandaráðs um fjárhagsáætlun 2027 og tilmæli Norðurlandaráðs um Helsingforssamninginn. Auk þess voru reifuð verkefni sem unnið er að í norræna ríkisstjórnarsamstarfinu, kynnt verkefni í tengslum við áherslur samstarfsráðherranna í áætlun um frjálsa för á Norðurlöndum o.fl
,,Það var ánægjulegt að heyra góðan samhljóm á meðal ráðherranna um mikilvægi þess að vinna að því að Færeyjar, Grænland og Álandseyjar geti orðið aðilar að Helsingforssamningnum á jafnræðisgrundvelli" sagði Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra. ,,Ísland styður það mál, enda er framlag þessara landa til norræns samstarfs mikilvægt, þau eru hluti af norrænu fjölskyldunni og virkir þátttakendur í því."
Danmörk og Færeyjar tóku við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni í upphafi árs 2026 og ber formennskuáætlun þeirra yfirskriftina Norðurlönd 2026 - Traust tengsl í hverfulum heimi.
Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra sótti fund samstarfsráðherra Norðurlanda í Kaupmannahöfn í forföllum Loga Einarssonar sem gegnir stöðu samstarfsráðherra Norðurlanda.
Samstarfsráðherrar Norðurlanda fara í umboði forsætisráðherra landanna með samræmingu norræna ríkisstjórnarsamstarfsins á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar sem fram fer í 12 ráðherranefndum og nefndum embættismanna og vinnuhópa undir þeim.
Unnið er að sameiginlegum lausnum á þeim sviðum þar sem Norðurlöndin geta náð betri árangri með því að vinna saman með norrænt notagildi að leiðarljósi. Unnið er eftir pólitísku stefnumótuninni Framtíðarsýn okkar 2030 um að Norðurlöndin verði samþættasta og sjálfbærasta svæði heims árið 2030 með áherslu á græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd.
Árið 2025 tóku gildi fjórtán samstarfsáætlanir ráðherranefnda á mismunandi fagsviðum fyrir árin 2025-2030, þar sem tilgreind eru markmið og undirmarkmið starfsins á næstu árum eftir málaflokkum og pólitískar áherslur.