Government Offices of Iceland

05/07/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/07/2026 09:24

Góð viðbrögð við frumkvæði Íslands um AMOC á fundi norrænna ráðherra

Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra setti veltihringrás Atlantshafsins, AMOC, á oddinn í umræðum á fundi norrænna umhverfis- og loftslagsráðherra sem haldinn var í Kaupmannahöfn í dag.

Hringrásin er lykilhluti af loftslagskerfi jarðar sem mótar veðurfar og hafstrauma á Norður-Atlantshafi. Nýlegar vísindarannsóknir benda til þess að auknar líkur séu á verulegri veikingu eða hruni AMOC sem gæti haft víðtækar og alvarlegar afleiðingar fyrir Ísland og Norðurlöndin öll. Ráðherra vakti athygli á því að ríkisstjórn Íslands hefði vísað málefninu til þjóðaröryggisráðs síðasta haust. Hann lagði áherslu á að Norðurlöndin ynnu saman að áhættu- og viðkvæmnimati og að byggðir yrðu upp innviði til samþættrar vöktunar á hafi og loftslagi.

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra: "Öruggasta leiðin til þess að lágmarka líkur á röskun AMOC og öðrum loftslagsvendipunktum er auðvitað hraðari samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu, og þar verðum við á Norðurlöndunum að vera í forystu og tala einni röddu," sagði ráðherra. "Að tala skýrt um AMOC og taka hættuna á röskun AMOC alvarlega er ekki hræðsluáróður heldur raunsæi. Að tala skýrt um þessa áhættu er ekki það sama og að ganga út frá verstu sviðsmyndum, þetta snýst einfaldlega um varúðarnálgun og ábyrga stjórnarhætti, um öryggi samfélaga okkar til framtíðar."

Meðal norrænu ráðherranna var samhljómur um mikilvægi og alvarleika málsins. Á endanum snúist það um að geta haldið uppi núverandi lífsskilyrðum í öllum norrænum samfélögum og það sé ábyrgð stjórnmálanna að bregðast við. Ráðherrarnir voru sammála um að sú hætta sem stafar af mögulegri veikingu eða stöðvun AMOC sé mikilvæg rök fyrir nauðsyn þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda á heimsvísu. Þá tóku ráðherrarnir undir að norrænt og alþjóðlegt samstarf sé lykilatriðið við að takast á við þessa ógn. Eining var um mikilvægi sameiginlegs viðvörunarkerfis, nauðsyn frekari rannsókna og að þörf sé á sameiginlegu áhættumati fyrir Norðurlöndin um efnahagslegar og samfélagslegar afleiðingar.

Á fundi ráðherranna var jafnframt rætt um stöðu alþjóðlegs samstarfs í ljósi stöðu heimsmála og mikilvægi samvinnu líkt þenkjandi þjóða. Þá var farið yfir undirbúning Norræna ráðherraráðsins fyrir loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna (COP31), ráðstefnu um líffræðilega fjölbreytni (COP17), stór innleiðingarmál ESB ásamt fleiru. Að þessu sinni tóku gestir þátt í fundinum, auk ráðherranna, þær Astrid Schomaker, framkvæmdastjóri Samnings sameinuðu þjóðanna um líffræðilega fjölbreytni og Leena Yla-Mononen, framkvæmdastjóri Umhverfisstofnunar Evrópu.


Government Offices of Iceland published this content on May 07, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on May 07, 2026 at 15:24 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]