06/19/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/19/2026 08:25
Dómsmálaráðherra og félags- og húsnæðismálaráðherra undirrituðu í dag samning við Bjarkarhlíð um að sinna áfram verkefnum tengdum mansali. Samningurinn er til fjögurra ára og felur í sér skuldbindingu upp á sextíu milljónir.
Árið 2025 kom Bjarkarhlíð að 44 mansalsmálum. Þar af tengdust 33 mál vinnumansali, 10 mál vændismansali og eitt mál var skilgreint sem þjónustuánauð á heimili. Frá árinu 2020 hefur Bjarkarhlíð sinnt verkefnum tengt mansali sem felst einkum í því að taka á móti þolendum mansals og samræma viðbrögð þeirra sem koma að mansalsmálum. Markmiðið er að greiða aðgengi þolenda mansals að viðeigandi þjónustu og tryggja réttindi þeirra.
"Baráttuna gegn mansali þarf að nálgast með ólíkum leiðum. Með þessum samningi leggja stjórnvöld áherslu á þolendur mansals og mannréttindi þeirra, sem verða alltaf að vera í forgrunni. Bjarkarhlíð fær núna svigrúm til að byggja upp enn frekari færni til að mæta þolendum mansals með upplýstum hætti og samræma starf þeirra sem koma að því að tryggja réttindi þeirra. Fleiri tæki í baráttunni gegn mansali verða svo kynnt í nýrri aðgerðaáætlun í haust," segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Samningurinn felur einnig í sér að Bjarkarhlíð þrói áfram fræðsluefni um mansal og geri það aðgengilegt og haldi árlega námskeið um mansal fyrir þá sem koma að þjónustu við þolendur mansals. Bjarkarhlíð mun einnig safna saman ýmsum tölfræðiupplýsingum og gefa út árlega skýrslu um stöðu og framvindu verkefnisins.
"Reynslan hefur sýnt að það er lykilatriði að bregðast skjótt við þegar upp koma mansalsmál og með samræmdum hætti. Í Bjarkarhlíð hefur byggst upp mikil reynsla og sérþekking á málaflokknum sem mikilvægt er að þróa áfram. Sú ákvörðun að gera fjögurra ára samning við Bjarkarhlíð endurspeglar skýran vilja stjórnvalda til að efla þennan málaflokk til lengri tíma og tryggja áframhaldandi uppbyggingu þekkingar, þjónustu og stuðnings við þolendur mansals," segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.