Government Offices of Iceland

01/14/2026 | Press release | Distributed by Public on 01/14/2026 08:54

Húsfyllir á málþingi um aðlögun að loftslagsbreytingum

Húsfyllir var á málþingi um aðlögun að loftslagsbreytingum sem Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, boðað til í Norræna húsinu í gær og fjöldi fólks til viðbótar fylgdist með í málþinginu í streymi. Sagði Jóhannn Páll það tímamót að aðlögun að loftslagsbreytingum hafi nú verið sett í skýran og markvissan farveg sem lykilhluti af öryggi og viðnámsþrótti íslensks samfélags, en fyrsta aðlögunaráætlun íslenskra stjórnvalda var gefin út í lok síðasta árs

"Með þessari fyrstu aðlögunaráætlun erum við að stíga nauðsynlegt skref inn í nýjan veruleika. Veruleika þar sem loftslagsmál snúast ekki aðeins um losun heldur einnig um það hvort innviðir standist álag, hvort heimili séu varin og hvort samfélagið haldi virkni þegar á reynir," sagði Jóhann Páll í ávarpi sínu.

Áhrif loftslagsbreytinga á mismunandi geira atvinnulífsins séu til að mynda bæði víðtæk og ólík milli greina og árangursrík aðlögun að breyttu loftslagi þurfi að byggja á góðum gögnum. "Í þessari fyrstu aðlögunaráætlun er lögð áhersla á að byggja upp þann þekkingargrunn sem þarf til góðra aðlögunaraðgerða til framtíðar," sagði Jóhann Pál, enda sé Ísland sé ekki í skjóli fyrir áhrifum loftslagsbreytinga frekar en önnur ríki.

"Við verðum að aðlaga samfélagið að þeim breytingum sem þegar eru hafnar, og vísindin gefa til kynna að séu framundan, án þess þó að draga úr metnaði þegar kemur að samdrætti í losun. Þetta tvennt verður að fara saman. Markmið aðlögunaráætlunarinnar er skýrt: að efla viðnámsþrótt og öryggi íslensks samfélags."

Mikill áhugi var á málþinginu.

Horft til loftslagsbreytinga við hönnun mannvirkja og vega

Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands, vakti í erindi sínu athygli á að breytt loftslag skapi aukna áhættu á aukinni náttúruvá, aukinni tíðni og umfangi öfgakenndra veðuratburða, hækkandi sjávarstöðu og hopun jökla. Árið 2025 hafi verið hlýjasta ár hér á landi frá upphafi mælinga og hitamet desembermánaðar fallið. Þá hafi hitabylgjan í maí verið óvenjuleg, ekki hvað síst vegna þess hve snemma hún kom, hversu lengi hún stóð og hve víðtæk áhrifin urðu. Sagði Hildigunnur loftslagsbreytingar valda því að líkur á hitabylgjum séu nú 40% meiri en áður.

Hildigunnur H. H. Thorsteinsson, forstjóri Veðurstofu Íslands.

Í máli sínu benti Elín Þórólfsdóttir, teymisstjóri starfsumhverfis mannvirkjagerðar hjá HMS, á mikilvægi þess að aðlaga mannvirki að loftslagsbreytingum, þar sem loftslagsbreytingar breyti forsendum fyrir hönnun, staðsetningu og endingu mannvirkja. Þá sagði Páll Valdimar Kolka Jónsson, verkefnisstjóri umhverfismála hjá Vegagerðinni, loftslagsbreytingar þegar vera orðnar hluti af hönnunarforsendum Vegargerðarinnar, enda geti loftslagsbreytinga haft áhrif á vegi landsins. Þar megi m.a.nefna flóðahættu á lágsvæðum, rof í vegum vegna ágangs sjávar og aukna hættu á skriðuföllum í bröttum hlíðum.

Fram kom á máþinginu að Íslendingar þurfi að læra að taka inn mögulegar framtíðarsviðsmyndir loftslagsbreytinga við uppbyggingu samfélagsins. Aðlögun að loftslagsbreytingum sé hugarfar sem samfélagið allt þurfi að tileinka sér á komandi árum og áratugum og að aðlögunaráætlun sé ætlað að vera vettvangur stjórnvalda til að tryggja ramma utan um þetta stóra verkefni og samhæfingu þess.

Elín Björk Jónasdóttir stýrði pallborðsumræðum, en í pallborði sátu: Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftslagsmála hjá Brim, Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Aðalheiður Snæbjarnardóttir forstöðumaður sjálfbærni, Landsbankanum og Jóhanna Gísladóttir, lektor, Landbúnaðarháskóla Íslands.

Líflegar umræður sköpuðust í pallborði með spurningum úr sal, og sögðu þátttakendur í pallborði til dæmis tækifæri til samlegðaráhrifa milli atvinnustefnu og nýútgefinnar stefnu um líffræðilega fjölbreytni. Jafnframt kom fram hve mikilvæg gagnaöflun og rannsóknir eru til að undirbyggja ákvarðanatöku og meta áhættu til lengri og skemmri tíma litið. Í pallborði sátu Sveinn Margeirsson, framkvæmdastjóri nýsköpunar og loftslagsmála hjá Brim, Finnur Ricart Andrason, sérfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, Aðalheiður Snæbjarnardóttir forstöðumaður sjálfbærni, Landsbankanumog Jóhanna Gísladóttir, lektor, Landbúnaðarháskóla Íslands.

Áætlun um aðlögun að loftslagsbreytingum er finna á CO2.is vef stjórnvalda um loftslagsmál.

Government Offices of Iceland published this content on January 14, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on January 14, 2026 at 14:54 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]