Prime Minister's Office of Iceland

08/14/2026 | Press release | Distributed by Public on 08/14/2026 07:24

Sumarfundur ríkisstjórnarinnar var haldinn á Höfn

Árlegum sumarfundi ríkisstjórnarinnar sem var haldinn á Höfn í Hornafirði og nágrenni lauk í dag.

Í gær hélt ríkisstjórnin vinnufund þar sem farið var yfir áherslur ríkisstjórnarinnar fyrir komandi þingvetur, auk þess sem rætt var um stöðu efnahagsmála og vinnumarkaðar og Evrópumál.

Ríkisstjórnin átti einnig fund í Nýheimum á Höfn með fulltrúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Skaftárhrepps og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga. Á fundinum var m.a. fjallað um málefni Vatnajökulsþjóðgarðs, menntamál, atvinnu og samgöngur á Suðausturlandi.

Í morgun var haldinn ríkisstjórnarfundur á Fosshótel Vatnajökli. Dagskrá sumarfundarins lauk með heimsókn ráðherra í ýmis fyrirtæki og stofnanir á svæðinu ásamt vígslu á viðbyggingu við hjúkrunarheimilið Skjólgarð.

"Það var ánægjulegt að fá ríkisstjórnina hingað í Hornafjörðinn til vinnufundar, og hefur staðið til um nokkra hríð. Við höfum átt gott samtal við heimamenn um sóknarfærin á Suðausturlandi og frekari framkvæmdir nú þegar búið er að vígja nýju brúna yfir Hornafjarðarfljót og nýbygginguna við hjúkrunarheimilið Skjólgarð og verið er að fara í umfangsmiklar hafnarframkvæmdir á Höfn," segir Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra. "Ríkisstjórnin náði líka að fara vel yfir helstu þingmál vetrarins og við munum mæta vel stemmd til leiks á nýju þingi."

Ríkisstjórnin ásamt fulltrúum Sveitarfélagsins Hornafjarðar, Skaftárhrepps og Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.

Prime Minister's Office of Iceland published this content on August 14, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on August 14, 2026 at 13:24 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]