Reykjavik University

08/21/2026 | Press release | Distributed by Public on 08/21/2026 05:51

Áfangi í upplýsingaöryggi: HR hlýtur ISO 27001 vottun

21. ágúst 2026

Háskólinn í Reykjavík hefur hlotið vottun samkvæmt ISO/IEC 27001:2022, sem er alþjóðlegur staðall fyrir stjórnun upplýsingaöryggis.

Vottunin er staðfest af óháðum úttektaraðila og byggir á reglulegum úttektum. Hún markar því ekki lokapunkt, heldur skuldbindingu háskólans um stöðugar umbætur í síbreytilegu umhverfi upplýsingaöryggis.

"Við erum stolt af þessum áfanga og þökkum öllu því starfsfólki sem lagði sitt af mörkum til þess að hann yrði að veruleika," segir Sæmundur Friðjónsson, forstöðumaður upplýsingatæknisviðs HR.

Vottunin staðfestir að upplýsingatæknisvið HR vinnur með kerfisbundnum og öguðum hætti að því að:

  • greina og stýra áhættu áður en hún verður að vandamáli
  • vernda trúnað, heilindi og aðgengi að upplýsingum
  • bregðast við öryggisógnum af öryggi og yfirvegun
  • bæta verkferla jafnt og þétt í takt við þróun upplýsingaöryggis

Jafnframt stuðlar vottunin að auknu rekstraröryggi gagnvart öryggisógnum og styrkir traust nemenda, starfsfólks, samstarfsaðila og annarra hagaðila á meðferð upplýsinga innan háskólans.

Reykjavik University published this content on August 21, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on August 21, 2026 at 11:52 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]