05/19/2026 | Press release | Distributed by Public on 05/19/2026 08:25
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hefur skipað starfshóp um loftslagstengda vendipunkta með áherslu á AMOC veltihringrásina. Ráðherra tók málið upp á ríkisstjórnarfundi í morgun og upplýsti ríkisstjórn um framvindu mála frá því í haust þegar málið fór síðast fyrir ríkisstjórn.
Ráðherra hefur falið starfshópnum að kortleggja stöðu vísindalegrar þekkingar um mögulegar breytingar á AMOC. Hópurinn á einnig að vinna tillögur að vöktunaráætlun vegna loftslagstengdra vendipunkta, ásamt því að greina þekkingargloppur og móta áherslur í stefnumótun og viðbrögðum við nýjustu vísindarannsóknum sem fjalla um loftslagstengda vendipunkta, þolmörk vistkerfa vegna þeirra og áhrif á Ísland. Þá er hópnum einnig falið að móta tillögur um erlent samstarf til eflingar vísindalegri vöktun.
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra:
"Ég hef séð ástæðu til að setja AMOC rækilega á dagskrá bæði á Íslandi og erlendis. Þótt töluverð óvissa sé til staðar um þróun hafstraumakerfisins, þá vitum við að áhættan eykst með áframhaldandi losun gróðurhúsalofttegunda. Í ofanálag er eðli þessarar áhættu þannig að þegar endanleg fullvissa liggur fyrir um að farið hafi verið yfir vendipunkt, þá yrði of seint að koma í veg fyrir verstu sviðsmyndir. Að tala skýrt um þessa hættu er því ekki svartsýni eða hræðsluáróður, heldur ábyrgir stjórnarhættir.
Við höfum fundið sífellt meiri undirtektir með málflutningi Íslands. Það gladdi mig hve vel var tekið í erindi Íslands um AMOC og þörfina á norrænu samstarfi á fundi norrænu ráðherranefndarinnar fyrr í mánuðinum. Breið samstaða var um það meðal norrænna loftslagsráðherra að taka nýlegar vísindarannsóknir og vísbendingar um auknar líkur á hruni hafstraumakerfisins alvarlega og vinna sameiginlega að frekari gagnaöflun, sterkari vöktunarinnviðum og áhættu- og viðkvæmnimati fyrir Norðurlöndin.
Öruggasta leiðin til að lágmarka líkur á röskun AMOC og öðrum loftslagsvendipunktum er hraðari samdráttur í losun gróðurhúsalofttegunda, og þar mun Ísland halda áfram að leggja sitt af mörkum og þrýsta á um kraftmeiri aðgerðir á heimsvísu. "
AMOC veltihringrásin er lykilhluti af loftslagskerfi jarðar sem flytur varma norður eftir Atlanshafi og hefur áhrif á haf- og loftsslag á Norður-Atlantshafssvæðinu. Nýlegar vísindarannsóknir benda til þess að auknar líkur séu á veikingu á AMOC sem gæti haft í för með sér kaldara loftslag, breyttar aðstæður í hafinu, sem og breytingar á veðurmynstri og árstíðasveiflum á Íslandi. Þó enn ríki óvissa um umfang, tímasetningu og þróun slíkra breytinga er talið nauðsynlegt að beita varúðarnálgun í ljósi þess hve alvarlegar afleiðingarnar geta orðið.
Ríkisstjórn Íslands vísaði, fyrir tilstilli umhverfis- orku- og loftslagsráðherra, málefninu til þjóðaröryggisráðs síðasta haust og hefur ráðherra á innlendum og erlendum vettvangi lagt mikla áherslu á mikilvægi AMOC, nauðsyn vöktunar, rannsókna og áhættumats, sem og mótvægisaðgerða gegn loftslagsbreytingum.
Starfshópinn skipa þau:
Stýrihópnum er falið að skila tillögum til ráðherra fyrir 31. október 2026.