Ministry of Finance and Economic Affairs of Iceland

03/25/2026 | Press release | Distributed by Public on 03/25/2026 08:48

Nú finnur þú fleira á Mínum síðum

25. mars 2026 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Nú finnur þú fleira á Mínum síðum

Mínar síður á Ísland.is auka þægindi og aðgengi að upplýsingum fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Framboð á þjónustu og gögnum þar hefur aukist mikið á síðustu misserum en nú veita yfir 40 stofnanir og opinberir aðilar þjónustu og birta gögn á Mínum síðum Ísland.is.

Hér eru 7 upplýsingagáttir sem þú getur kynnt þér á Mínum síðum:

  • Tilvísanir og skráningu á biðlista í heilbrigðiskerfinu - finnur þú nú undir hnappinum Heilsa.
  • Bólusetningarstöðu þína og barna þinna - finnur þú nú undir hnappinum Heilsa.
  • Upplýsingar um undirskriftalista sem þú hefur skrifað undir á Ísland.is - undir hnappinum Mínar upplýsingar.
  • Tilkynningar frá héraðsdómstólum og lögreglu, eins og ákærur og dómar - í stafrænu pósthólfi eða undir hnappinum Lög og regla.
  • Lyfjareiknivél sem sýnir áætlaðan kostnað þinn vegna lyfjakaupa, miðað við þrepastöðu - undir hnappinum Heilsa.
  • Stafræn umboð sem þú hefur veitt eða fengið - undir hnappinum Aðgangsstýring.
  • Stöðu umsókna sem þú hefur hafið, sent inn eða lokið - undir Umsóknir.

Meira á leiðinni

Brátt finnur þú einnig:

  • Húsaleigusamninga sem þú ert aðili að - undir hnappinum Mínar upplýsingar.
  • Yfirlit yfir tímabókanir í heilbrigðiskerfinu - undir hnappinum Heilsa.
  • Yfirlit yfir greiðslur frá Tryggingastofnun og gögn vegna mála hjá þeim - undir hnappinum Framfærsla.

Margt í Ísland.is appinu

Þú hefur líka aðgang að ýmsum upplýsingum og þjónustu af Mínum síðum í Ísland.is appinu. Þar er áherslan á gögn og upplýsingar sem almenningur nýtir sér dags dagslega, þar má meðal annars finna:

  • Stafræna pósthólfið.
  • Stafræn ökuskírteini og fleiri opinber skírteini, auk skanna til staðfestingar á skírteinum annara.
  • Upplýsingar um stöðu umsókna hjá opinberum stofnunum.
  • Kílómetraskráningu fyrir ökutæki í þinni eigu.
  • Upplýsingar um bólusetningar, lyf og fleira sem tengist heilbrigðiskerfinu.
  • Upplýsingar um Loftbrú og afsláttarkóða fluggjalda fyrir íbúa á landsbyggðinni.

Efnisorð

Til baka
Ministry of Finance and Economic Affairs of Iceland published this content on March 25, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on March 25, 2026 at 14:48 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]