07/01/2026 | Press release | Distributed by Public on 07/01/2026 09:19
Dómsmálaráðuneytið hefur skrifað undir samning við Alþjóðafólksflutningastofnunina, IOM, um framkvæmd DNA-sýnatöku og aðstoð við afhendingu ferðaskilríkja vegna mála sem tengjast fjölskyldusameiningu hér á landi.
"Íslensk stjórnvöld hafa hingað til ekki látið framkvæma DNA rannsókn til að staðfesta fjölskyldutengsl áður en dvalarleyfi er veitt á grundvelli fjölskyldusameiningar. Með samningnum verður hægt að ganga úr skugga um að þau fjölskyldutengsl sem umsókn byggist á séu raunveruleg og við færum okkur nær þeirri framkvæmd sem tíðkast á Norðurlöndunum," segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.
Að mati ráðuneytisins skiptir miklu máli að samningurinn sé í höfn því Ísland hefur takmarkað fyrirsvar erlendis. Með samningnum verður hægt að tryggja nauðsynlega þjónustu fyrir þá sem sækja um dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar frá löndum þar sem hvorki er íslenskt sendiráð né ræðisskrifstofa.
Það hefur til að mynda verið flókið að taka DNA-sýni. Slíkt getur verið nauðsynlegt þegar umsækjendur koma frá ríkjum þar sem opinber gögn eru talin óáreiðanleg, fölsun gagna algeng eða skráningu í manntal ábótavant. Í þeim tilvikum hefur Útlendingastofnun veitt fólki dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar með þeim fyrirvara að DNA-rannsókn fari fram eftir komuna til Íslands.
Á undanförnum árum hafa komið upp nokkur mál þar sem DNA-rannsókn á barni eftir komuna til landsins leiddi í ljós að barnið var ekki líffræðilega skylt meintu foreldri. Þetta kallar á flókna málsmeðferð. Erfitt hefur reynst að staðfesta fjölskyldutengsl í upprunaríki og stjórnvöld þurft að meta hvað er barninu fyrir bestu og tryggja því viðeigandi umsjá hér á landi.
Í þessum löndum hefur einnig verið erfitt að afhenda fólki sem hefur fengið dvalarleyfi á grundvelli fjölskyldusameiningar bráðabirgðaferðaskilríki eða vegabréfsáritanir. Fólkið hefur því ekki getað ferðast með lögmætum hætti til Íslands þrátt fyrir að uppfylla önnur skilyrði.
Heildarkostnaður nemur um 505 þúsund evrum eða 72,7 milljónum íslenskra króna. Samningurinn gildir til 31. desember 2028. Fjármögnun samningsins er tryggð og ónotað fjármagn verður endurgreitt til ráðuneytisins. Útlendingastofnun verður aðaltengiliður við IOM og leggur fram beiðnir um vinnslu einstakra mála.