Government Offices of Iceland

08/14/2026 | Press release | Distributed by Public on 08/14/2026 05:27

Varnir Íslands og Norður-Atlantshafsins æfðar á varnaræfingunni Norður-Víkingur

Tvíhliða varnaræfing Bandaríkjanna og Íslands, Norður-Víkingur 2026, fer fram á Íslandi og hafsvæðinu í kringum landið dagana 22. ágúst til 3. september n.k. Meginmarkmið æfingarinnar er að æfa varnir Íslands, þar með talið varnir mikilvægra innviða, sjóleiðirnar umhverfis Ísland, leit og björgun, gistiríkjastuðning og samhæfingu íslenskra stjórnvalda við herstjórnir Bandaríkjanna og Atlantshafsbandalagsins (NATO).

Jafnframt verður æft hvernig mæta skuli hefðbundinni hernaðarógn á landi, sjó og í lofti ásamt fjölþáttaógnum og skemmdarverkum. Norður-Víkingur er haldin á Íslandi að jafnaði annað hvert ár.

Æfingin verður tvískipt að þessu sinni; annars vegar verður æft viðbragð Bandaríkjanna við vaxandi ógn á grundvelli varnarsamningsins og hins vegar viðbrögð Atlantshafsbandalagsins eftir virkjun 5. greinar bandalagsins. Í ár eru 75 ár liðin frá undirritun tvíhliða samnings Íslands og Bandaríkjanna á sviði varnarmála og samningurinn og aðildinni að Atlantshafsbandalaginu eru grunnstoðirnar í varnarstefnu Íslands.

Áætlað er að um 150-200 íslenskir þátttakendur komi að æfingunni ásamt fjölþjóðlegum liðsafla frá Bandaríkjunum, Belgíu, Kanada, Danmörku, Finnlandi, Frakklandi, Noregi, Svíþjóð, Þýskalandi og Atlantshafsbandalaginu. 

Viðstaddur opnunarathöfn æfingarinnar, sem fram fer þriðjudaginn 18. ágúst, verður Alexus G. Grynkewich, yfirhershöfðingi Atlantshafsbandalagsins (SACEUR), sem jafnframt er yfirmaður herafla Bandaríkjanna í Evrópu. Í heimsókn sinni til Íslands mun Grynkewich hitta bæði forsætisráðherra og utanríkisráðherra. Fastafulltrúi Bandaríkjanna hjá Atlantshafsbandalaginu, Matthew Whitaker, sækir Ísland einnig heim af þessu tilefni.


Government Offices of Iceland published this content on August 14, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on August 14, 2026 at 11:27 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]