02/24/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/24/2026 11:25
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra flutti í dag ávarp á sérstökum hliðarviðburði í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í Genf þar sem þess var minnst að fjögur ár eru frá því að allsherjarinnrás Rússa í Úkraínu hófst. Úkraína stóð að viðburðinum með stuðningi Íslands og Noregs og voru bæði Þorgerður og Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, viðstödd viðburðinn.
Í ávarpi sínu fordæmdi utanríkisráðherra áframhaldandi árásarstríð Rússa gegn Úkraínu og kallaði eftir því að stríðsfangar yrðu látnir lausir og að úkraínskum börnum, sem hefðu verið numin brott frá heimalandi sínu, yrði skilað án tafar. Ráðherra ítrekaði stuðning Íslands við Úkraínu og kallaði eftir samstöðu alþjóðasamfélagsins.
"Í dag er mér hugsað til venjulegs fólks sem dag hvern sýnir gríðarlegt hugrekki og hefur mátt þolað endalausa óvissu, missi og ótta. Í gegnum loftárásir, flótta og vetrarþunga, án öruggs hita og ljóss, hafa þau þurft að sýna þrautseigju, aftur og aftur, þegar allt virðist vonlaust, og kastljósið er komið annað vegna metfjölda átaka í heiminum," sagði Þorgerður Katrín.
Ráðherra sagði nauðsynlegt fyrir trúverðugleika alþjóðakerfisins að tryggja að refsað yrði fyrir þau mannréttindabrot og brot gegn alþjóðalögum sem framið hefðu verið. Rannsóknarnefnd á vegum mannréttindaráðsins hefði safnað sönnunargögnum sem gætu nýst í mögulegum málatilbúnaði í framtíðinni.
Þorgerður Katrín átti einnig nokkra tvíhliða fundi í dag, m.a. með Varsen Aghabekian, utanríkisráðherra Palestínu, sem sótti Ísland heim sl. haust. Ráðherrarnir ræddu um framfylgd vopnahlésins á Gaza og nýstofnað friðarráð undir forystu Bandaríkjaforseta. Einnig ræddu ráðherrarnir alvarlega stöðu mannréttinda á Vesturbakkanum og nýlegar ákvarðanir yfirvalda í Ísrael um breytta umgjörð um eignarhald lands á Vesturbakkanum. Í gær tók Ísland undir sameiginlega yfirlýsingu 19 ríkja um að fordæma þessa ákvörðun Ísraels, auk þess sem löndin kröfðust þess að Ísrael stöðvi ofbeldi landtökufólks á Vesturbakkanum gegn Palestínumönnum og afhendi heimastjórn Palestínu skatttekjur sem heimastjórnin á með réttu.
Ráðherra fundaði einnig með nýjum flóttamannafulltrúa Sameinuðu þjóðanna, Barham Salih, sem tók við embætti í janúar sl. Á fundinum fór Salih yfir helstu áherslur sínar en Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna (UNHCR) hefur líkt og aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna orðið fyrir áhrifum af yfirstandandi fjárhagsörðugleikum alþjóðakerfisins. Þá ræddu þau stöðu mála í Úkraínu, Súdan, og Sýrlandi ásamt Íran og Afganistan. Ítrekaði ráðherra stuðning Íslands við stofnunina og undirstrikaði mikilvægi þess að UNHCR forgangsraði áfram vernd einstaklinga og standi þétt við verkefni sem snúa að vörn við kynbundnu- og kynferðislegu ofbeldi.