06/30/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/30/2026 06:46
Samantektarkafli skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum hefur verið birtur í íslenskri þýðingu. Í skýrslunni, sem kom út í maí, er fjallað um kosti og galla sjálfstæðs gjaldmiðils samanborið við aðild að stærra gjaldmiðlasvæði, svo sem evrusvæðinu.
Skýrslan var unnin af fjórum erlendum sérfræðingum undir forystu Catherine L. Mann. Markmið hennar er að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi.
Með íslenskri þýðingu samantektarinnar er efni skýrslunnar gert aðgengilegra íslenskum lesendum. Fjórir kaflar skýrslunnar verða einnig birtir í íslenskri þýðingu síðar í sumar.