02/20/2026 | Press release | Distributed by Public on 02/20/2026 05:48
Opinberri vinnuheimsókn Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra til Japan lauk í dag með heimsókn til borgarinnar Nagasaki. Þar fundaði Þorgerður Katrín með borgarstjóra, Shiro Suzuki, og héraðsstjóra Nagasaki, Kengo Oishi, og lagði blóm á minnismerki um fórnarlömb kjarnorkuárásarinnar á borgina fyrir rúmum 80 árum og hitti eftirlifendur. Í gær fundaði hún með varnarmálaráðherra Japans, Shinjiro Koizumi, og var samstarf ríkjanna í varnar og- öryggismálum þar til umræðu, m.a. á vettvangi Atlantshafsbandalagsins þar sem Japan er eitt af formlegum samstarfsríkjum bandalagsins (IP4).
Ráðherra fundaði í gær einnig með þjóðaröryggisráðgjafa japönsku ríkisstjórnarinnar þar sem umræður lutu að þjóðaröryggisstefnu Japans og stöðu mála í þessum heimshluta. Þá fundaði ráðherra með Shinako Tsuchiya, þingkonu og formanni vinafélags Íslands í japanska þjóðþinginu, og Yoko Kamikawa, þingkonu og fyrrum utanríkisráðherra Japans. Þorgerður Katrín flutti enn fremur fyrirlestur í Tókýóháskóla og tók í framhaldi þátt í samtali við háskólanema. Umfjöllunarefnið í erindi ráðherra voru samskipti Íslands og Japans, efnahagslegt öryggi og tengingar á milli norðurslóða og Indó-Kyrrahafssvæðisins.
Loks opnaði Þorgerður Katrín formlega í gær nýja áritanamiðstöð í sendiráði Íslands í Tókýó fyrir skammtíma Schengen-áritanir til Íslands. Áritanamiðstöðin hóf störf 1. febrúar síðastliðinn og þjónustar hún fjögur ríki í Suðaustur-Asíu, Taíland, Filippseyjar, Indónesíu og Singapúr, auk Japans.
"Þessi heimsókn hefur verið mjög mikilvæg til að efla samband Íslands og Japans. Við erum, eins og nágrannaríki okkar, að styrkja tengsl við líkt þenkjandi þjóðir og þar er Japan lykilbandamaður í Asíu. Fjölmörg tækifæri eru fyrir hendi til að auka viðskipti milli landanna, ferðalög fólksins okkar og samstarf á ýmsum sviðum, t.a.m. á sviði jarðhita, jafnréttismála og öryggis- og varnarmála," segir Þorgerður Katrín. "Heimsóknin til Nagasaki var síðan einstaklega áhrifarík og minnti á að við megum aldrei gleyma sögunni. Það er hlutverk okkar allra að verja friðinn og koma í veg fyrir að kjarnorkusprengjur verði nokkurn tímann notaðar aftur. Fólkið frá Nagasaki og Hiroshima ber ekki eitt þá ábyrgð."