Government Offices of Iceland

06/23/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/23/2026 13:54

Utanríkisráðherra Spánar sótti Ísland heim

Tvíhliða samband Íslands og Spánar, Evrópumál, norðurslóðir, innrásarstríð Rússlands í Úkraínu, staða mála í Mið-Austurlöndum og samskipti yfir Atlantsála voru efst á baugi fundar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra og José Manuel Albares Bueno, utanríkisráðherra Spánar, sem fram fór í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag.

Alþjóðasamstarf og málefni Sameinuðu þjóðanna voru einnig til umræðu og þá var skrifað undir viljayfirlýsingar um reglulegt pólitískt samráð ríkjanna, frekara samstarf á sviði jafnréttismála sem og á sviði rannsókna og vísinda. Þá greindi Albares Þorgerði Katrínu frá þeim ásetningi spænskra stjórnvalda að opna sem fyrst sendiráð á Íslandi.

"Samband okkar við Spán er sífellt að styrkjast enda mikil og góð samskipti milli ríkjanna. Ekki aðeins á sviði stjórnmála og viðskipta heldur einnig venjulegs fólks, en þúsundir Íslendinga sækja Spán heim ár hvert um lengri og skemmri tíma og á sama tíma fjölgar spænskum ferðamönnum á Íslandi sem er mikið ánægjuefni. Við myndum auðvitað fagna því sérstaklega ef Spánverjar ákveða að koma á fót sendiráði hérlendis," segir Þorgerður Katrín. "Við ræddum vitanlega Evrópumálin en Spánn hefur nú átt aðild að sambandinu í fjóra áratugi og Albares fer ekki leynt með þá skoðun að það skref hafi verið þjóð sinni til heilla. Þá erum við bandamenn í Atlantshafsbandalaginu og hefur samstarf okkar á sviði öryggismála verið að aukast jafnt og þétt þrátt fyrir fjarlægð milli ríkjanna. Spánverjar önnuðust til að mynda loftýmisgæslu bandalagsins á Íslandi í fyrsta skipti á síðasta ári. Síðast en ekki síst ríkir mikill samhljómur milli þjóðanna þegar kemur að mannréttindamálum, og þá sérstaklega á sviði kynjajafnréttismála þar sem bæði ríkin standa framarlega á alþjóðavísu."

Dagskrá utanríkisráðherra Spánar á Íslandi var þétt. Hann hóf daginn á því að heimsækja Alþingi í morgun og fundaði spænski ráðherrann með utanríkismálanefnd. Því næst lá leið hans í ráðherrabústaðinn við Tjarnargötu til fundar við utanríkisráðherra og síðar Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra.

Þar á eftir var haldinn opinn viðburður með utanríkisráðherrum Íslands og Spánar í Norræna Húsinu í samstarfi við Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands. Að því loknu hélt Albares svo í heimsókn í þjóðgarðinn á Þingvöllum í fylgd Þorgerðar Katrínar.

Government Offices of Iceland published this content on June 23, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on June 23, 2026 at 19:54 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]