Government Offices of Iceland

04/20/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/20/2026 09:46

Utanríkisráðherra skipar Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í embætti sendiherra

Utanríkisráðherra hefur ákveðið að skipa Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur í embætti sendiherra til fimm ára á grundvelli 2. mgr. 9. gr. laga nr. 39/1971 um utanríkisþjónustu Íslands. Skipan Þórdísar í embætti er frá 1. ágúst nk.

Ráðgefandi hæfninefnd skipuð samkvæmt 6. mgr. 9. gr. laga nr. 39/1971 um utanríkisþjónustu Íslands hefur metið Þórdísi Kolbrúnu mjög vel hæfa til að gegna stöðu sendiherra. Nefndina skipuðu Einar Gunnarsson sendiherra og fastafulltrúi, Anna Jóhannsdóttir sendiherra og fastafulltrúi og Birgir Hrafn Búason mannauðsstjóri.

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir hefur átt sæti á Alþingi frá árinu 2016 fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Hún var ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra 2017-2021 og um skeið einnig dómsmálaráðherra á árinu 2019. Hún var utanríkisráðherra 2021-2023 og aftur um rúmlega átta mánaða skeið árið 2024 en í millitíðinni, 2023-2024, gegndi hún embætti fjármála- og efnahagsráðherra. Þórdís Kolbrún var einnig varaformaður Sjálfstæðisflokksins 2018-2025. Hún hefur frá því í febrúar 2025 verið sérstakur erindreki framkvæmdastjóra Evrópuráðsins um málefni barna í Úkraínu. Þórdís Kolbrún hefur ML-próf í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Hún var lögfræðingur hjá úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála 2011-2012, framkvæmdastjóri þingflokks Sjálfstæðisflokksins 2013-2014, stundakennari í stjórnskipunarrétti við Háskólann í Reykjavík 2013-2015 og 2025 og aðstoðarmaður innanríkisráðherra 2014-2016.

Government Offices of Iceland published this content on April 20, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on April 20, 2026 at 15:46 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]