06/10/2026 | Press release | Distributed by Public on 06/10/2026 09:24
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið hefur sett til kynningar í Samráðsgátt stjórnvalda áform og drög að frumvarpi til breytingar á á lögum nr. 33/2004 um varnir gegn mengun hafs og stranda svo tryggja megi skýran lagaramma um rannsóknir í hafi.
Frumvarpið er samið af starfshópi þriggja ráðuneyta, þ.e. umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis, utanríkisráðuneytis og atvinnuvegaráðuneytis, auk fulltrúa frá Umhverfis- og orkustofnunar. Með frumvarpinu eru lagðar til breytingar á lögum sem tryggja eiga skýran lagaramma um heimildir til að stunda rannsóknir í hafinu umhverfis Ísland, á sviði loftslagsverkfræði ("marine geoengineering"), og sem m.a. er ætlað að vinna gegn loftslagsbreytingum af mannavöldum, sem og tryggja skilvirkni í málsmeðferð.
Samkvæmt lögum um landhelgi, efnahagslögsögu og landgrunn eru vísindalegar rannsóknir háðar samþykki stjórnvalda, en framkvæmd þeirra laga hefur verið á forræði utanríkisráðuneytisins og miðast einkum við rannsóknir erlendra ríkja og alþjóðastofnana. Í frumvarpinu er lögð til sú breyting að Umhverfis- og orkustofnun geti veitt leyfi fyrir vísindalegum rannsóknum er varða loftslagsverkfræðilegar aðgerðir í hafi í rannsóknarskyni, en stofnunin fer með loftslagsmál og mengunarvarnir. Ákvæðin sem nú eru til kynningar byggja á breytingum á Lundúnabókuninni (Resolution LP.4(8)) og gerir kröfu um að slíkar rannsóknir séu lögmætar vísindarannsóknir og háðar mati á áhrifum samkvæmt matsviðmiðum sem samþykkt hafa verið af samningsaðilum og leyfi Umhverfis- og orkustofnunar. Með því er tryggt að Ísland uppfylli alþjóðlegar skyldur sínar um verndun hafsins gegn mengun sem getur hlotist af slíkum aðgerðum.
Athygli er vakin á því að umsagnarfrestur vegna frumvarpsins í Samráðsgátt stjórnvalda er til 7. júlí.