04/29/2026 | Press release | Distributed by Public on 04/29/2026 04:46
Sendiráð Íslands í London vekur athygli á utankjörfundaratkvæðagreiðslu vegna komandi sveitarstjórnarkosninga sem fara fram á Íslandi 16. maí n.k.
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hófst hjá sendiráðinu og kjörræðismönnum Íslands föstudaginn 17. apríl.
Í sendiráðinu í London er hægt að greiða atkvæði alla virka daga á milli kl. 9:30-16:00, fram til 15. maí.
Kjósendur þurfa að framvísa gildum íslenskum persónuskilríkjum, svo sem vegabréfi, nafnskírteini eða ökuskírteini.
Athugið að lokað verður í sendiráðinu eftirfarandi daga: 1. maí, 4. maí og 14. maí.
Athugið að þeir kjósendur sem hyggjast kjósa hjá kjörræðismönnum Íslands þurfa að panta tíma fyrirfram hjá viðkomandi ræðismanni. Lista yfir ræðismenn má finna á vef utanríkisráðuneytisins.
Í sveitarstjórnarkosningum byggir kosningaréttur á lögheimili og þurfa kjósendur að hafa lögheimili á Íslandi. Kjósendur geta flett upp hvort og hvar þeir eru á kjörskrá á vef Þjóðskrár.
Nánari upplýsingar um utankjörfundaratkvæðagreiðslu má nálgast á kosning.is
Kjósandi ber ábyrgð á að koma atkvæði sínu á réttan stað. Hægt er að setja bréfið í póst, eða afhenda það einhverjum sem kjósandi felur að koma því til skila. Kjörstjóra er þó skylt, ef kjósandi óskar þess, að koma bréfinu í almennan póst. Ef senda á atkvæði með pósti er mælt með að kjósa tímanlega og taka mið af sendingartíma og áreiðanleika viðkomandi póstþjónustu.