Results

The President of Iceland

02/09/2026 | Press release | Archived content

„Þurfum að rækta leiðtogann í öðrum“

Fréttir | 09. feb. 2026

"Þurfum að rækta leiðtogann í öðrum"

Forseti afhenti Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi við hátíðlega athöfn á Grand Hótel. Verðlaunin eru veitt árlega í þremur flokkum en auk þess voru veitt sérstök heiðursverðlaun að þessu sinni.

Þeir sem hlutu viðurkenningu voru Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, í flokki yfirstjórnenda, Óttar Örn Sigurbergsson framkvæmdastjóri ELKO og Helga Halldórsdóttir forstöðumaður mannauðs hjá Arion banka, í flokki millistjórnenda og Þór Sigfússon stofnandi og stjórnarformaður Íslenska sjávarklasans, í flokki frumkvöðla. Þá hlaut Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto á Íslandi, sérstök heiðursverðlaun fyrir framlag sitt til stjórnunar.

Í ávarpi sem forseti flutti við athöfnina ræddi hún sérstaklega um þær áskoranir sem örar tækni- og samfélagsbreytingar hafa í för með sér fyrir leiðtoga, hvort sem er í fyrirtækjum eða á opinberum vettvangi. Hún sagði meðal annars: "Undir þessum kringumstæðum getum við ekki treyst bara á okkur sjálf, okkar nánasta samstarfsfólk eða tæknina. Áskoranirnar eru það flóknar og samofnar að við þurfum að valdefla alla sem leggja hönd á plóginn. Við þurfum, með öðrum orðum, bæði að rækta leiðtogann í okkur sjálfum og öðrum."

Stjórnunarverðlaun Stjórnvísi eru veitt stjórnendum fyrirtækja sem þykja hafa skarað fram úr á sínu sviði. Markmiðið er að stuðla að fagmennsku á sviði stjórnunar hérlendis, örva umræðu um faglega stjórnun og vekja athygli á framúrskarandi starfi stjórnenda og frumkvöðla.

Deila
The President of Iceland published this content on February 09, 2026, and is solely responsible for the information contained herein. Distributed via Public Technologies (PUBT), unedited and unaltered, on February 11, 2026 at 14:00 UTC. If you believe the information included in the content is inaccurate or outdated and requires editing or removal, please contact us at [email protected]